Það er réttlætismál að almenningur sé upplýstur um það hvernig þeir sem sækjast eftir völdum og áhrifum á opinberum vettvangi íslensks samfélags fjármagna starfssemi sína.
Einn af grundvallarþáttum í starfsemi stjórnmálaflokks er hvernig hann aflar fjár enda er fjármagn ein forsenda þess að stjórnmálaflokkur geti með virkum hætti kynnt stefnumál sín og frambjóðendur.
Frjálslyndi flokkurinn leggur mikla áherslu á að stjórnmálaflokkar landsins opni bókhald sitt fyrir almenningi.
Það er því stefna Frjálslynda flokksins að settar verði reglur sem skyldi alla stjórnmálaflokka að opna bókhald sitt og að upplýst sé um styrktaraðila stjórnmálaflokks yfir ákveðinni fjárhæð. Það verður að teljast eðlileg krafa í opnu og lýðræðislegu samfélagi.
Reglur um opið bókhald og upplýsingar um styrktaraðila stjórnmálaflokka eru talinn sjálfsagður hlutur í hinum vestræna heimi.
Reikninga flokksins má skoða með því að smella á neðangreinda tengla:
Ársreikningur 2007
Ársreikningur 2006
Ársreikningur 2005
Ársreikningur 2004
Ársreikningur 2003