Fréttir
16. mars 2010
Landsþing Frjálslynda flokksins verður haldið
föstudaginn 19. og laugardaginn 20. mars, 2010.
Dagskrá er sem hér segir:
Föstudagur 19.mars: (smellið á meira...)
Meira...
15. mars 2010
- Björgvin Arngrímsson skrifar:
Hverjar verða okkar áherslur í komandi alþingiskosningum? Í
dag eru allir flokkar á Alþingi með breytingar á fiskveiðistjónuninni á sinni könnu ásamt afnámi verðtryggingar á lánum. Það segir okkur að við höfum barist fyrir réttlætismálum þar og unnið ákveðinn sigur.
Fjölskyldu-, atvinnu- og velferðarmál munu verða fyrirferðamikil, en ég vil líka sjá önnur mál. T.d. að landið verði eitt kjördæmi. Og með lögum verði allir lífeyrissjóðir sameinaðir.
...
Meira13. mars 2010
- Grétar Mar Jónsson Suðurkjördæmi skrifar:
Í ríkisstjórnarsáttmálanum segir að farin skuli fyrningarleið. Fyrningarleiðin átti að vera spor í þá átt að fyrna kerfi sem almenningur í landinu hefur lengi verið ósáttur við. Landsmenn eru ósáttir við kerfið vegna þess að það hefur sýnt sig að hafa ekki almannahagsmuni að leiðarljósi heldur að hygla sérhagsmunum fárra á kostnað heildarinnar.
...
Meira13. mars 2010
-Grétar Mar Jónsson Suðurkjördæmi skrifar:
Ég á mér draum um að fiskveiðistjórnun á Íslandi verði í framtíðinni byggð á jafnrétti, réttlæti, frelsi og heiðarleika. Ég tel að besta leiðin til þess að svo geti orðið væri að ríkið leigði sóknardaga til útgerðarmanna og að þeir greiddu leiguna jafnóðum og þeir nýttu dagana. Þetta er leið sem Færeyingar fara þó svo að þeir leigi ekki dagana. Það væri samt nauðsynlegt að tryggja að ekki væri hægt að framselja þessa daga til annarra, til að koma í veg fyrir brask. En ef menn eru ekki tilbúnir að fara leið Færeyinga þá tel ég að hinn kosturinn sé sá að ríkið leigi út allar veiðiheimildir í tonnum og kílóum.
Núverandi stjórnvöld lofuðu í stjórnasáttmálanum að farin yrði fyrningarleið á fiskveiðiheimildum.
...
Meira