a aa aaa

Tilkynningar

NÝR FLIPI HÉR FYRIR OFAN: "ÁLYKTANIR".

FACEBOOK: NÚ ER HÆGT AÐ TENGJA FRÉTTIR OG GREINAR VIÐ FACEBOOK.

MUNIÐ FUNDINN MEÐ GRÉTARI MAR UM ATVINNUMÁL Á SÆGREIFANUM Á MIÐVIKUDAG (10. MARS.)KL. 20:00 ... [Meira]

PÓSTHÓLF OKKAR ER
xf@xf.is

Mynd augnabliksins

Mynd augnabliksins
Íslensk línutrilla.

Póstlisti


 

 
 

Atburðadagatal

S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
10
11
12
13

14
15
16
17
18
19
20

21
22
23
24
25
26
27

28
29
30
31
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður

Málefni

Málefnahandbókin
Íslenska Polska Tai English

27. janúar 2010

Fjármagna íslenskir bankar glæpasamtök? - nánar

Í Danmörku stendur yfir viðamikil skattrannsókn sem beinist að skipulögðum glæpasamtökum á borð við Hells Angels og Bandidos. Komið hefur í ljós að margir bankar hafa lagt þekktum glæpamönnum í Hells Angels til fjármagn til að fjármagna klúbbhús og kaup á fyrirtækjum sem væntanlega eru svo notuð til þess að þvotta illafengið fé (Sjá frétt visir.is). Frjálslyndi flokkurinn hefur varað við þessari þróun hér á landi. Það er etv. tilefni til að spyrja íslenska banka hvort þeir séu að fjármagna kaup skipulagðra glæpasamtaka á fyrirtækjum  hér á landi. Það er t.d. þekkt að tilvonandi meðlimir Hells Angels á Íslandi sjást iðulega á bak við afgreiðsluborðið á ákveðnum bar í Reykjavík. Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins sendi frá sér ályktun gegn skipulögðum glæpasamtökum 01. sept. 2009: 
 

Ályktun framkvæmdastjórnar Frjálslynda flokksins um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi.
Frjálslyndi flokkurinn tekur undir hugmyndir ríkislögreglustjóra um að löggjafinn setji lög sem geri það mögulegt að banna skipulögð glæpasamtök.
Flokkurinn telur nauðsynlegt að íslenskt þjóðfélag bregðist hart við fréttum um að skipulögð glæpasamtök séu að ná enn frekari fótfestu en orðið er.
Frjálslyndi flokkurinn telur nauðsynlegt að lögreglan og þar til bærar stofnanir hafi þau ráð sem dugi til þess að leysa upp skipulagða glæpastarfsemi á borð við Hells Angels. Skipulögð glæpsamtök snúast helst um það að hafa fé af þjóðfélaginu.
Þess vegna hvetur Frjálslyndi flokkurinn til þess að lögregla hafi skýra heimild til þess að gera eignir skipulagðra glæpasamtaka og meðlima þeirra upptækar. Nú verða íslenskir stjórnmálamenn að sýna hugrekki og taka á þessu máli af festu og ábyrgð. Frjálslyndi flokkurinn fagnar þeirri ákveðni sem lögregluyfirvöld eru tilbúinn að sýna til að sporna gegn glæpagenginu Hells Angels.
En til þess þurfa þau líka stuðning almennings og stjórnmálamanna. 
 

Senda á Facebook

Fréttasafn

2010
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ
SEP
OKT
NÓV
DES
2009
2008
2007
JAN
FEB
MAR
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ