Gullkistan_L

Styrkja flokkinn

Bankanúmer:  137-26-123456
Kennitala: 480998-2359
« Maí 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Fréttir
Stjórn Frjálslynda flokksins styður heilshugar þá sjómenn sem hyggjast
berjast fyrir rétti sínum og alls almennings og róa til fiskjar með
handfæri, án kvóta.  Sjómennirnir eru í fullum rétti enda ótvírætt
varðir af jafnræðisreglu stjórnarskrár íslenska lýðveldisins og eru
réttindin tryggð í alþjóðasamningum sem íslenska lýðveldið hefur
undirgengist. Undir það hafa tekið æðstu valdhafar framkvæmdarvaldsins í
málefnum dómsmála og sjávarútvegsmála, sbr. þskj. 6 á 136.
löggjafarsamkomu lýðveldisins. Stjórnarflokkarnir, Vinstri grænir og
Samfylkingin, gáfu sjómönnunum í mannréttindabaráttunni, sem margir eru
ungir að árum, skýr fyrirheit fyrir síðustu alþingiskosningar um að
jafnræði íslenskra þegna yrði virt við nýtingu sameiginlegrar
fiskveiðiauðlindar þjóðarinnar. Engin rök eru fyrir því að nokkrir
almannahagsmunir geti legið því til grundvallar að takmarka
handfæraveiðar, s.s. vegna meintrar ofveiði. Algerlega útilokað er að
ofveiða fiskistofna með handfærum.
Sunnudagur, 16 Október 2011 01:30

Grátkór bankanna

Skrifað af Guðjón Arnar Kristjánsson
Nú þegar til stendur í frumvarpi sjávarútvegsráðherra um kvótakerfið að takmarka og síðan afnema að 23 árum liðnum veðsetningu á óveiddum fiski í sjó til bankanna,upphefst  sameiginlegur grátkór bankanna um að veðsetningu megi ekki breyta og að á lifandi fiski í sjó, auðlind þjóðarinnar,verði áfram alla tíð veðtrygging fyrir lánum til útgerðarfyrirtækja. Allt lánakerfi bankanna verður í uppnámi og einskisvirði að þeirra sögn án þessa veðs í óveiddum fiski sem þjóðin á. Í lögum er skrifað "Nytjastofnar á Íslandsmiðum er sameign íslensku þjóðarinnar". Ástæða er til að spyrja?? Hafa starfsmenn og eigendur bankanna ekkart  lært af reynslu undanfarinna ára, óhófslána út á sýndarverðmæti. Eða telja bankarnir enþá að eitt kíló af þorski sé allt að 4.000 króna virði óveiddur og syndandi í sjónum við Ísland. Eru lánastofnanir landsins orðnar ófærar um að leggja mat á rekstur og afkomu þeirra sem eru í atvinnurekstri. Eða meta dugnað þeirra og afkomumöguleka sem starfa í sjávarútvegi.
Laugardagur, 15 Október 2011 13:47

Mikil þörf á kerfisbreytingum

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Miðstjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við alheimsmótmælin í dag þann 15 október, gegn spilltu samkrulli fjármála og stjórnmála. Það hefur sýnt sig eftir hrun íslensku bankanna og efnahagsvanda hins vestræna heims, að mikilla breytinga er þörf á núverandi fjármálakerfi.

Stjórnmálastéttin heyrir ekki lengur í almenningi og hefur gjáin á milli ráðandi afla og almennings breikkað. Í stað þess að stjórnmálin taki mið af hag almennings þá ræðst ákvarðanataka í meira mæli af þröngum sérhagsmuna- og peningaöflum.

Frjálslyndi flokkurinn álítur þörfina fyrir kerfisbreytingar vera brýna og mótmælir leyndarhyggju stjórnvalda og að aftur sé verið að blása upp bankakerfið á fölskum forsendum.

Skrifstofa Frjálslynda flokksins er flutt í Grasrótarmiðstöðina að Brautarholti 4, Reykjavík.  Fyrsti miðstjórnarfundurinn í nýja húsnæðinu verður haldinn laugardaginn 15. októbert nk.

Grasrtarmist

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara