Gullkistan_L

Styrkja flokkinn

Bankanúmer:  137-26-123456
Kennitala: 480998-2359
« Júní 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Fréttir
Föstudagur, 11 Mars 2011 20:06

Veruleikafirrtur Háskóli Íslands

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Í stað þess að Háskóli Íslands sé miðstöð skapandi og gagnrýninnar hugsunar virðist sem hann hafi að einhverju marki lent í því að vera áróðurshreiður þar sem blekkingum er bunað út á færibandi til þess, að því er virðist, að verja mjög þrönga sérhagsmuni.  

Það ætti að vera baráttumál númer eitt hjá bæjarfulltrúum Sandgerðisbæjar að berjast fyrir því að breytingar verði gerðar á núverandi fiskveiðastjórnunarkerfi, þannig að allir hefðu jafnan aðgang að nýtingu sjávarauðlindarinnar.

Fyrir bæjarfélagið hefði það í för með sér minna atvinnuleysi, hærri útisvarstekjur og hafnargjöld. Hvorki fyrrverandi né núverandi bæjarstjórn hefur sýnt vilja til að leggja sitt að mörkum til að stuðla að breytingum á kerfinu sem myndi verða bæjarfélaginu til hagsbótar.

Í stað þess að vinna að því að ná fram breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu hefur hingað til verið lögð áhersla á að finna nýjar leiðir til atvinnusköpunar sem hafa ekki skilað neinum árangri. Breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi sem hefði atvinnufrelsi að leiðarljósi myndi leiða til þess að hægt væri nýta betur þá fjárfestingu sem þegar er til staðar í bátum og húsum tengdum sjávarútvegi. Þessi leið hefði ekki í för með aukinn kostnað fyrir bæjarfélagið en hún getur dregið úr atvinnuleysi og aukið tekjur bæjarfélagins. Aukinn veiði og vinnsla hefði einnig þau áhrif að aukin eftirspurn verður eftir þjónustu í tengslum við sjávarútveg.

Möguleikar Sandgerðisbæjar eru miklir og sérstaklega þegar horft er til hafnarinnar sem enn er í eigu bæjarfélagsins. Höfnin okkar er góð og í tengslum við hana höfum við möguleika á að byggja upp blómlegt atvinnulíf til framtíðar. Bæjarfélagið þarf að markaðssetja höfnina til að auka viðskipti t.d. smábáta sem koma til með að gera út á grásleppu og strandveiðar í sumar. Nálægð Sandgerðisbæjar við millilandaflugvöllinn er styrkleiki sem við eigum að nýta í markaðasetningu á  höfninni. Þetta gerist ekki að sjálfu sér heldur þarf að setja fram leiðir sem unnið yrði eftir til að gera þetta að veruleika.  

Eina sem núverandi atvinnu-og hafnarráð hefur áorkað á því ári sem liðið er frá síðustu sveitarstjórnarkosningum er að hækka gjaldskrá hafnarinnar. Það hefur ekki verið farið í að jafna þjónustugjöld þannig að allir borgi það sama fyrir þjónustuna sem eðli málins samkvæmt ætti að vera stefna flokks sem kennir sig við jafnrétti, frelsi og bræðralag. Það er ekkert réttlæti í því að bæjarfélagið greiði niður þjónustu fyrir sægreifana og skerði þar með tekjur sínar á sama tíma og lagðar eru meiri álögur á almenning í bæjarfélaginu. Ef allir viðskiptavinir hafnarinnar borguðu sama gjald fyrir þjónustuna mynd það þýða að tekjur hafnarinnar myndu aukast um 15-20 milljónir á ári að minnsta kosti. Höfn sem skuldar yfir 400 milljónir munar um minna. Það ber ekki vott um ábyrga fjármálastjórn að nota ekki og nýta þá tekjumöguleika sem fyrir hendi er til hagsbóta fyrir íbúa sveitafélagins. 

Það ætti að vera forgangsverkefni hjá atvinnu- og hafnarráði og bæjarstjórn að beita áhrifum sínum til að núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi verði tafarlaust breytt með hagsmuni bæjarbúa og bæjarfélagsins að leiðarljósi.

Með bestu kveðju til allra Sandgerðinga,
Grétar Mar Jónsson.

(Grein sem birtist á 245.is 4.3.2011.)

Laugardagur, 05 Mars 2011 20:20

Fasteignar ruglið

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Ein stærstu mistök sem Sandgerðisbær hefur gert í gegnum árin var að selja eigur bæjarfélagins til Fasteignar ehf.. Afleiðingar þessa er að upp hefur hlaðist mikill kostnaður fyrir sveitarfélagið.  Einnig leiðir aðkoma sveitarfélagins að Fasteign ehf. til þess að þegar leigusamningur bæjarins við félagið rennur út eftir 20 ár mun sveitarfélagið ekki eiga skólabyggingarnar, félagsheimilið, sundlaugina eða íþróttahúsið.

Nú er rætt um að inn leysa þessar eignir aftur frá Fasteign ehf. til sveitarfélagsins fyrir  ca. 2,5 milljarða. Staðan er hins vegar sú að Sandgerðisbær hefur ekki burði til þess í daga miðað við fjárhagsstöðu bæjarfélagsins. Því tel ég að það væri betra fyrir Sandgerðisbæ að Fasteign ehf. yrði sett í gjaldþrot. Þá hefði  Sandgerðisbær möguleika á að semja við skiptastjóra um yfirtöku á eignum Fasteignar ehf. í bæjarfélaginu. Ég tel að þetta myndi leiða til þess að við gætum fengið eignirnar til baka á hagstæðari kjörum en þeim sem nú er rætt um.

Það voru mikil átök í sveitarfélögum hringinn í kringum landið þegar ákveðið var að stofna Fasteign ehf. og sitt sýndist hverjum. Það hefur komið á daginn að þeir sem voru á móti því að selja eignir sveitafélagins inn í Fasteign ehf. höfðu rétt fyrir sér. Maður getur spurt sig hvaða einstaklingur vilji selja svo til skuldlaust hús sitt til að losa um peninga til þess eins að eyða í dekur og borga síðan fasteignafélagi og banka leigu á sömu eign í tuttugu ár?

Það eina sem aðkoma sveitarfélaganna að Fasteign ehf. leiddi til var að losað var um fé sem síðan var notað af bæjarstjórnarmönnum til að reisa sér minnisvarða á kostnað bæjarbúa án þess að þeir hefðu í huga framtíðar hagsmuni þeirra. Fasteignar ævintýrið í okkar bæjarfélagi hefur leitt til þess að við erum á mörkum þess að missa fjárhagslegt sjálfstæði okkar. Sandgerðisbær er í dag sennilega eitt af skuldsettustu sveitarfélögum landsins.

Við höfum alla burði til að vera stöndugt og vel rekið sveitarfélag því Sandgerðisbær fær ca. 300. milljónir í tekjur frá flugstöðinni og öðrum byggingum á sama svæði. Þess vegna er mikilvægt að það verði kafað ofan í það hvers vegna skuldastaða sveitarfélagsins er eins slæm og raun ber vitni.

Grein birt á 245.is 19-11-2011. 

Sjávarútvegsnefnd Frjálslynda flokksins leggur til að veiðiheimildir verði strax auknar í botnfisktegundum og leigðar út á vegum ríkisins.

Aukningin myndi skapa fjölda starfa og auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar.

thorskur

 

F.h. Sjávarútvegsnefndar Frjálslynda flokksins, þann 26. febrúar 2011

Sigurjón Þórðarson, formaður

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara