Styrkja flokkinn
Kennitala: 480998-2359
Einu sinni var lítil þjóð sem bjó í sátt og samlyndi við náttúröflin og landvættina á lítilli eyju út í ballarhafi. Þessi þjóð var friðsamleg og að mörgu leyti svolítið trúgjörn. Hún trúði því að allt væri í himnalagi í litla lýðveldinu og að af hverju strái drypi hunang öllum stundum.

Senn koma jólin og allt sem þeim fylgir og fylgja ber. Það hefur truflað mig undanfarin ár, á jólaföstunni, sú vitneskja að margir hafa mikla mæðu af jólahátíðinni og þeim kröfum sem henni fylgja. Síauknar kröfur um jólatilstand og gjafir kalla á taumlausa kaupmennsku, í frelsarans nafni, sem ekki hefur farið vel í alla.
Icesave í þjóðaratkvæðgreiðslu Enn á ný er komin á Icesavesamningur sem felur í sér að kreppuhrjáður íslenskur almenningur eigi að greiða ólögvarðar kröfur Breta og Hollendinga. Kröfur sem tilkomnar eru vegna fjárglæfra bankanna sem ekki víluðu fyrir sér að fegra bókhaldið út í hið óendanlega. Óskiljanlegan vilja ríkisstjórnarinnar til að fallast á hvern afarkostinn á fætur öðrum um greiðslu Icesave, má helst skýra út frá þráhyggju Samfylkingarinnar við að koma þjóðinni inn í Evrópusambandið og gríðarlegs þrýstings frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.





Ásta Hafberg




