Styrkja flokkinn
Kennitala: 480998-2359
Opið bréf til borgarstjóra
Reykjavík, 4. nóvember 2010
Hr. Borgarstjóri
Jón Gnarr
Frá því að forsvarsmönnum Frjálslynda flokksins varð ljóst vorið 2008, í valdatíð Ólafs F. Magnússonar sem borgarstjóra í umboði Sjálfstæðisflokksins, að lögbundinn fjárstyrkur barst ekki Frjálslynda flokknum , hefur Frjálslyndi flokkurinn leitast eftir því að ná fram lagalegum rétti sínum.
Kristján Andri Guðjónsson: Flateyri hvað er til ráða?
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonÞau áföll sem nú dynja yfir Flateyri í atvinnumálum eru öll af mannavöldum. Hér birtist versta hlið kvótakerfisins grímulaus. Mest allar aflaheimildir sjávarþorpsins eru horfnar á braut en svona eru fiskveiðistjórnunarlögin. Í þeim er sama og engin vörn, fyrir byggðarlög eins og sjávarþorpið Flateyri sem er með gjöful fiskimið svo að segja við bæjardyrnar. Ljóst er að endurskoða þarf fiskveiðistjórnunarlögin með hraði til að svona vandamál komi ekki upp aftur og aftur allt í kringum landið. Það ferli mun taka of langan tíma og því þarf að bregðast fljótt við, ef ekki á illa að fara.
Formaður bæjarmálafélags Frjálslyndra í Vestmannaeyjum kallar eftir ábyrgð á Landeyjarhafnarklúðrinu
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonGeorg Arnarson formaður bæjarmálafélags Frjálslynda flokksins í Vestmanneyjum kallar eftir ábyrgð þeirra sem kváðu niður málefnalega gagnrýni á hafnargerð á Landeyjarsandi. Í bloggfærslu skorar Georg á eftirfarandi aðila; Sigurður Áss Grétarsson, Siglingamálastofnun, Elliði Vignisson, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, Kristján Möller, alþingismann og fyrrverandi samgönguráðherra, Róbert Marshall, alþingismann og Árna Johnsen, alþingismann sem bera ábyrgð á milljarða klúðri að segja af sér. Það er ljóst að þrátt fyrir að milljarðar hafi farið í samgönguframkvæmdir þá eru samgöngur við Eyjarnar ótryggari en áður.
Ályktun frá miðstjórn Frjálslynda flokksins 7. nóvember 2010
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonÍslendingar hafa sýnt aðgerðarleysi ríkisstjórnar Samfylkingar og VG gríðarlegt langlundargeð. Það orsakast af því hvað hinir hlutar fjórflokksins hafa lélegt orðspor.
Tveimur árum eftir hrun og rúmum mánuði eftir ein stærstu mótmæli í sögu lýðveldisins, hefur ríkisstjórnin storkað almenningi með marklausu tali þar sem slegið er úr og í hvernig marglofuð skjaldborg verði reist um íslensk heimili. Engar aðgerðir liggja fyrir og ekki einu sinni útreikningar á mögulegum lausnum nú tveimur árum eftir hrun!




Ásta Hafberg




