Gullkistan_L

Styrkja flokkinn

Bankanúmer:  137-26-123456
Kennitala: 480998-2359
« Júní 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Fréttir
Mánudagur, 04 Október 2010 14:23

Styrkjum starfið

Skrifað af Sigurjón Þórðarson
Stjórn Frjálslynda flokksins hefur ákveðið ða leita til  félagsmanna sinna um fjárframlög. Nú er staðan erfið og þegar lögboðnar greiðslur berast ekki flokknum frá Reykjavíkurborg er ekki annað í stöðunni en að leita ásjár félagsmanna.
Þess vegna hefur flokkurinn ákveðið að senda flokksmönnum  á næstunni valgreiðslu án greiðsluseðils í heimabanka viðkomandi. Upphæðin er 2000 kr og það er frjálst val hvort menn greiði þessa upphæð . Intrum eða aðrar innheimtustofnanir munu ekki græða á þessu,Það mun sem sagt ekkert gerast ef þið sleppið að borga. Við erum okkur vel meðvituð um að hagur íslenskra heimila er ekki góður en ef þeir sem geta séð af lítilli upphæð þá gerir margt smátt ótrúlega stórt að lokum. Með von um skilning á nauðsyn þess að án fjármuna mun ekki vera hægt að berjast fyrir þeim fjölmörgu mikilvægu málefnum sem flokkurinn stendur fyrir. Með fyrirfram þökk,
Sigurjón Þórðarson
Fimmtudagur, 30 September 2010 21:46

Réttlæti Steingríms J. Sigfússonar

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Nú hefur komist upp um að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur séð til þess að afskrifaðar voru 2.600 milljónir af lítilli trilluútgerð sem tengist fjölskyldu Halldórs Ásgrímssonar.  Ekki voru það atvinnuhagsmunir sem settu afskriftirnar í forgang enda hefur fyrirtækið einungis örfáa menn í vinnu. Eigendurnir voru rétt nýbúnir fyrir hrun að dæla hundruðum milljóna út úr rekstrinum í arð.

Þessi verk sem unnin eru í skjóli Vg og fjármálaráðherra hljóta að vekja viðbjóð tugþúsunda Íslendinga sem eru í skuldavanda og horfðu upp á fjármálaráðherrann Steingrím og Árna Pál Árnason ólmast um og beita Hæstarétt þrýstingi. Samfylkingin og Vg fengu þann dóm sem flokkarnir pöntuðu frá réttinum og réðu sér vart fyrir kæti yfir niðurstöðunni sem þeim fannst réttlát þó svo að hún hafi komið sér illa fyrir almenning.

Tímabært er að velta fyrir sér hvað Steingrími þyki réttlátt, skynsamlegt og þess virði að færa fórnir fyrir. Ég get ekki séð annað en að allar björgunaraðgerðirnar og afskriftirnar miði að því að bjarga kerfinu. Steingrímur leggur áherslu á að bjarga skuldsetta kvótakerfinu í sjávarútvegi, bönkunum, verðtryggingunni, lífeyrissjóðakerfinu, skuldsettu stóru peningunum í atvinnurekstri, stóru tyggingafélögunum og skuldsettu landbúnaðarkerfinu. Fjármálaráðherrann virðist ekki gera sér grein fyrir því að lykillinn að því að landið nái sér út úr kreppunni eru skynsamlegar og réttlátar breytingar á framangreindum þáttum. 

Eina leiðin sem stjórnin sér til að kosta björgunarleiðangurinn er að fara dýpra ofan í vasa almennings og brjóta mannréttindi á þegnunum.

Þriðjudagur, 28 September 2010 09:27

Velkomin í Frjálslynda flokkinn

Skrifað af Sigurjón Þórðarson
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vg hefur valdið kjósendum sínum gríðarlegum vonbrigðum en þessi hluti fjórflokksins lofaði í aðdraganda kosninganna sem fram fóru fyrir einu og hálfu ári endurreisn, endurmati, réttlæti og sáttargjörð við þjóðina um breytingar á illræmdu kvótakerfi í sjávarútvegi.

Núna sitja fjölmargir kjósendur Vg og Samfylkingarinnar eftir með sárt ennið þar sem skjaldborgin reyndist lygaþvæla og þegar til á að taka varðseta um algerlega óbreytt ástand. Ríkisstjórnin hefur að vísu reist háa múra um þau kerfi sem ollu hruninu, s.s. óbreytt kvótakerfi, lífeyrissjóðakerfi, verðtryggingu og fjárglæframennina. Hún dekstrar hrunaliðið með skattfríðindum til atvinnurekstrar pólitískra vildarvina og hálaunaðri sérfræðivinnu í æðstu stjórn ríkisins.
Þeir sem vilja raunverulegar breytingar verða að þora að stíga fram og taka af krafti þátt í stjórnmálabaráttu þar sem endurreisnin mun ekki verða af sjálfu sér.  Þjóðin hefur ekki lengur efni á samtryggingu fjórflokksins og varðstöðu um kerfi sem fela í sér mannréttindabrot.

Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, Guðbjartur Hannesson, sem lofaði fólki réttlátum breytingum á kvótakerfinu býður fólki upp á að festa í sessi óbreytt kerfi til tveggja áratuga. Ósvífnin er þvílík að varaþingmaður Samfylkingarinnar, Þórður Már Jónsson, hafði ekki lengur geð í sér til þess að kenna sig við flokkinn. Mér finnst eðlilegt að almennir kjósendur Samfylkingarinnar velti því einnig fyrir sér hvort þeir eigi samleið með þessu ómerkilega svikaliði. Ég reikna með að fjölmargir kjósendur Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi svari þessari spurningu hikstalaust neitandi. Á þá hina sömu skora ég að koma til starfa í Frjálslynda flokknum. Frjálslyndi flokkurinn hefur frá stofnun barist af alefli fyrir skynsamlegum og réttlátum breytingum á kvótakerfinu og hefur ekki verið á jötu banka eða útrásarhyskis.

Frjálslyndi flokkurinn hefur sett stórt spurningarmerki við grundvallarforsendur kvótakerfisins sem hefur grafið undan byggðunum. Okkur veitir ekki af því að fara að fiska meira til að rétta af byggðirnar og allir sem eru sama sinnis ættu að leggja okkur lið.
Föstudagur, 24 September 2010 12:25

Ályktun vegna fátæktar í Reykjavík.

Skrifað af Gunnar Skúli Ármannsson

Ályktun frambjóðenda Frjálslynda flokksins í Reykjavík vegna fátæktar.

Frambjóðendur Frjálslynda flokksins til borgarstjórnar kosninganna s.l. vor óttuðust mjög um hag fátækra í borginni. Bentu þau ítrekað á að búast mætti við auknum fjölda og vaxandi fátækt þeirra fátæku á næstu misserum. Skýrsla Seðlabankans frá 12. apríl gaf mjög sterkt til kynna að vaxandi fjöldi myndi ekki ná endum saman þegar fram í sækti. Þessi mál fengu litla athygli, a.m.k. í samanburði við ísbirni eða gjaldhlið við borgarmörkin.

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara