Gullkistan_L

Styrkja flokkinn

Bankanúmer:  137-26-123456
Kennitala: 480998-2359
« Maí 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Fréttir
Sunnudagur, 05 September 2010 12:53

Pakistan-í hvoru liðinu ert þú

Skrifað af Gunnar Skúli Ármannsson
gunnarskuliEins og öllum er kunnugt um þá hafa miklar hörmungar gengið yfir Pakistan. Mikil flóð urðu þess valdandi. Afleiðingarnar eru dauði, meiðsli, sjúkdómar og eignatjón. Vegakerfið, amk 45 brýr og járnbrautaleiðir hafa eyðilagst. Mörg svæði eru einangruð sökum þess og erfitt um vik að koma hjálp til skila. Um 20% af húsnæði heilbrigðiskerfisins er ónýtt. Á einum ferðamannastað hurfu næstum 100 hótel, um var að ræða eina megintekjulind viðkomandi svæðis.
Um 6 milljónir eru heimilslausir og yfir 20 milljónir hafa orðið fyrir mismiklum skaða. Hjálp berst seint og illa og vetur er skammt undan. Ef ekki tekst að bæta ástandið verulega í Pakistan fyrir veturinn er von á enn meiri hörmungum. Þjóðir hafa lofað aðstoð, samtals um einum milljarði dollara, en eins og reynslan kennir okkur er ekki sopið þó í ausuna sé komið. Slík loforð skila sér oft alls ekki.
Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 22:25

3 endurskoðun AGS er væntanleg

Skrifað af Gunnar Skúli Ármannsson

gunnarskuliÞað er margt merkilegt í íslenskum stjórnmálum. Almenningur afgreiðir stjórnmál og stjórnmálamenn oft sem einn pakka sem ekki sé treystandi á. Ekki fjarri lagi en oft byggt á lítilli rannsóknarvinnu hjá almenningi. Fjölmiðlar og blaðamenn bera mikla ábyrgð á þessu ástandi. Það er skrásett staðreynd að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn á alltaf lokaorðið í stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar nema þegar kemur að ljósabekkjum eða súludansi. Það heitir á betra máli að fullveldi landsins sé í höndum stofnunar(AGS) sem er vel þekkt fyrir að tileinka sér hugmyndafræði Milton Friedmans og drengjanna frá Chicago.

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara