Styrkja flokkinn

PDF skráPrentaNetfang

Ég óska hér með eftir að gerast styrktarmaður Frjálslynda flokksins með því að leggja inn á bankareikning flokksins
 

Bankanúmer:  137-26-123456 Kennitala: 480998-2359

Einnig er hægt að ganga frá málum með því að hringja í skrifstofu
Frjálslynda flokksins. Sími 552 2600

 

Frjálslyndi flokkurinn hefur heitið því að starfa heiðarlega og fyrir opnum tjöldum. Með þetta að leiðarljósi upplýsir flokkurinn um nöfn allra einstaklinga og fyrirtækja sem styrkja flokkinn um fjárhæð hærri en kr. 500.000. Flokkurinn upplýsir einnig um nöfn þeirra aðila sem styrkja flokkinn með lægri fjárhæð sé vilji til þess hjá styrktaraðila. Auk þessa mun flokkurinn birta fjölda þeirra aðila (ekki nöfn) sem styrkja flokkinn um lægri fjárhæðir.

Fjárframlög til stjórnmálaflokka eru frádráttarbær frá tekjum af atvinnurekstri. Frá tekjum lögaðila og þeim tekjum manna sem stafa af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi eða eru tengdar slíkum rekstri má draga; einstakar gjafir og framlög til stjórnmálaflokka, þó ekki yfir 0,5% af tekjum á því ári sem gjöf er afhent, sbr. 2. tl. 31. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignaskatt. Sjá einnig nánar reglugerð nr. 483/1994 um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, 15. og 16. gr.

Það er réttlætismál að almenningur sé upplýstur um það hvernig þeir sem sækjast eftir völdum og áhrifum á opinberum vettvangi íslensks samfélags fjármagna starfssemi sína. Einn af grundvallarþáttum í starfsemi stjórnmálaflokks er hvernig hann aflar fjár enda er fjármagn ein forsenda þess að stjórnmálaflokkur geti með virkum hætti kynnt stefnumál sín og frambjóðendur.

Frjálslyndi flokkurinn leggur mikla áherslu á að stjórnmálaflokkar landsins opni bókhald sitt fyrir almenningi. Það er því stefna Frjálslynda flokksins að settar verði reglur sem skyldi alla stjórnmálaflokka að opna bókhald sitt og að upplýst sé um styrktaraðila stjórnmálaflokks yfir ákveðinni fjárhæð. Það verður að teljast eðlileg krafa í opnu og lýðræðislegu samfélagi. Reglur um opið bókhald og upplýsingar um styrktaraðila stjórnmálaflokka eru talinn sjálfsagður hlutur í hinum vestræna heimi.

 

ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara