Málefnaskrá Reykjavík 2010

PDF skráPrentaNetfang

Stefnuskrá Frjálslynda flokksins fyrir borgarstjórnakosningar í Reykjavík 2010.

 

INNGANGUR


Í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 urðu miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi. Valdhafar innan stjórnkerfis og fjármálakerfisins settu land og þjóð í þrot. Sagan kennir okkur að velferð þjóða er nýtt til endurgreiðslu skulda við slíkar aðstæður. Frjálslyndi flokkurinn hafnar alfarið að sú leið  sé valin og telur eitt brýnasta verkefnið hjá Reykjavíkurborg að verja velferðina.
Álag á velferðakerfi borgarinnar mun væntanlega halda áfram að aukast sökum kreppunnar. Fjöldi einstaklinga sem þurfa mataraðstoð hefur aukist verulega. Fjöldi heimila er gjaldþrota og virðist sá fjöldi fara vaxandi. Ráðstafanir yfirvalda virðast ekki hafa snúið  þeirri þróun við. Um 24% heimila í landinu eru í vanda samkvæmt Seðlabanka Íslands.
Frjálslyndi flokkurinn er andsnúinn þeirri stefnu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn rekur hér á landi. Háir stýrivextir, kröftugur niðurskurður og miklar lántökur dýpka kreppuna frekar en hitt. Aðgerðir sem dýpka kreppuna geta komið harkalega niður á borgarbúum. Það mun auka þörf á aðgerðum á vegum borgarinnar til að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í neyð.
Reykjavíkurborg hefur ekki aðkomu að þeim ákvörðunum sem ríkisstjórnin og AGS sammælast um.
Því mun Frjálslyndi flokkurinn beita sér fyrir því að auka aðkomu Reykjavíkurborgar að þeim mikilvægu ákvörðunum sem varða alla borgarbúa

 
 
MENNTUN

Leikskólar og dagforeldrar


 
Öll börn eigi rétt á leikskólanámi frá 18 mánaða aldri og börnum yngri en átján mánaða verði tryggð vistun hjá dagforeldrum.  Leikskóla og dagvistunargjöldum sé stillt í hóf, samvinna milli leik- og grunnskóla verði efld og systkinum verði tryggt leikskólapláss á sama leikskóla.
 
Dagforeldrakerfið verði eflt í samvinnu við dagforeldra í borginni og það gert skilvirkara til þjónustu við barnafólk með því að dagforeldrar verði hluti af leikskólasviði borgarinnar.  Við teljum að foreldrar barna innan við átján mánaða aldur eigi að  geta valið hvort barnið sé í vistun inni á  heimili í litlum hópi í stað vistunar á leikskóla, án þess að þurfa að greiða hærra gjald fyrir þjónustuna.
Heilsdagsskóli með máltíðum, íþróttum, list- og verknámi frá upphafi
Grundvallaratriði í menntastefnu Frjálslynda flokksins er óhindraður aðgangur allra að menntun án tillits til efnahags eða búsetu. Hátt menntastig er besta fjárfesting íslensku þjóðarinnar til framtíðar og eflir framgang frelsis, upplýstrar umræðu, fordómaleysis og lýðræðis.
Hagsmunir barna verða best tryggðir með samfelldu skólastarfi og  skólamáltíðir séu eðlilegur hluti heilsdagsskólans. Frjálslyndi flokkurinn vill tryggja gjaldfrjálsar máltíðir í grunnskólum borgarinnar sem eru í samræmi við kröfur um innihald og gæði sett fram af Lýðheilsustöð ríkisins
Grunnskólastigið verði styrkt með því að tryggja sveitarfélögum fjármagn til þess að að standa undir lögbundinni þjónustu og til þess að efla innra starf skólanna, þróunarstarf og nýsköpun.
Skólar hafi frelsi til að velja sér skólastefnu. Stuðningur borgarinnar verði jafn við alla viðurkennda grunnskóla, miðað við nemendafjölda enda sé þeim ekki heimilt að innheimta skólagjöld.
Samstarf foreldra og skóla er mikilvægur þáttur til að byggja upp gott og heilbrigt skólasamfélag. Styðja þarf við framþróun í skólum, efla samvinnu við foreldra og áhrif þeirra á menntun barna sinna
Við teljum mjög mikilvægt að taka tillit til þarfa einstaklinga í námi þannig að jafnræði ríki, bæði að lakari nemendur verði ekki skildir eftir og einnig að hæfari nemendur fái verkefni við sitt hæfi.
Skólar eiga að vera vettvangur gagnrýnnar og skapandi hugsunar þar sem færni nemenda í tjáningu og rökræðu er efld.  Í nútíma samfélagi  er nauðsynlegt að efla  sjálfstæða gagnrýna hugsun og borgaralega virkni. Auka færni nemenda í að afla upplýsinga en jafnframt að meta sannleiksgildi þeirra. Nemendur skilji hugtök eins og lýðræði og séu færir um að taka þátt í lýðræðislegri þjóðfélagsumræðu
Bæta þarf starfsfræðslu í efstu bekkjum grunnskóla og auka námsráðgjöf til að sporna gegn brottfalli nemenda úr námi.
Auka fræðslu í grunnskólum um aðra menningarheima og trúarbrögð  til að sporna gegn fordómum.
Einelti er alvarlegt vandamál sem verður að uppræta með öllum ráðum. Einelti á hvergi að líðast og skylda ætti alla grunnskóla borgarinnar að hafa eineltisáætlun og sjá til þess að henni sé framfylgt
Íþróttakennsla færist í vaxandi mæli inn í skólana og samstarf milli skóla og íþróttafélaga verði stóreflt til dæmis á sviðum sem frístundaheimilin sinna núna.
 


FJÖLSKYLDUSTEFNA 
 


Stefna Reykjavíkurborgar sé fjölskylduvæn.
Forsendur verða að vera til þess að jafnvægi náist milli fjölskyldulífs og atvinnuþátttöku. Samþætting og samfella verði eins góð og mögulegt er á milli skóla, félagsstarfs, heilbrigðismála, íþrótta- og tómstundamála.
Hluti af okkar fjölskyldustefnu er að leikskólar í borginni komi til móts við óskir foreldra varðandi sumarleyfi.
Við leggjum áherslu á að bjóða upp á hollar og næringarríkar máltíðir í skólum samkvæmt ráðleggingum Lýðheilsustöðvar.
Það er mikilvægur þáttur í okkar fjölskyldustefnu að gera öldruðum kleift að búa heima, við fullt sjálfræði, eins lengi og þeir óska.
Við viljum stilla innheimtu þjónustugjalda í hóf og höfum ávallt haft á  okkar stefnuskrá að tryggja lág þjónustugjöld fyrir börn, unglinga, aldraða og öryrkja.
Við viljum tryggja aðgengi fatlaðra við hönnun mannvirkja eða þjónustufyrirtækja
Frjálslyndi flokkurinn lítur á samþætt forvarnarstarf í öflugu samstarfi heimila, skóla, íþróttafélaga og félagsþjónustu sem mikilvægan þátt í fjölskyldustefnu.
Mikilvægur þáttur í  fjölskyldustefnu er að hafa öryggi barna ávallt í fyrirrúmi við hönnun lóða og mannvirkja  og við leggjum ríka áherslu á að stuðla að öryggi barna í umferðinni.
Við viljum að  skipulag byggðar og umhverfis stuðli að sjálfbærri þróun samfélagsins. Einnig  viljum við gæta þess við allar framkvæmdir á vegum borgarinnar hafi sem minnsta röskun á náttúru og lífríki.
Í fjölskyldustefnu okkar viljum við ætíð hafa jafnræðis-og jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.
 
 

 

ELDRI BORGARAR


Tryggja þarf framboð á hentugu húsnæði fyrir aldraða og öryrkja. Sérstaklega þarf þó að fjölga hjúkrunarrýmum og stytta þar með biðlista eftir hjúkrunarrými.
Æskilegt er að fólki sé gert kleift að búa sem lengst heima en þá þarf jafnframt að efla heimaþjónustu.
Aldraðir eiga að geta starfrækt sjálfstæð rekstrarfélög sem henta þörfum þeirra um búsetu og þjónustu.
Húsnæði sem víða er til staðar, en er ekki nýttt, mætti hugsa sér sem heimili fyrir aldraða með mismunandi þjónustustigi.
Styðja þarf vel við  félagsstarf aldraðra og öryrkja og annað það sem tryggir sem best þátttöku þeirra í þjóðlífinu.
Við teljum mikilvægt að eldra fólk og öryrkjar komi að ákvörðunum og hafi áhrif á sveitarstjórnarmál jafnt sem önnur þjóðfélagsmál.


ATVINNUMÁL

 

Opinber rekstur verði hagkvæmur fyrir borgarbúa
Góð þjónusta borgarinnar þarf að vera tryggð óháð rekstrarformi. Frjálslyndi flokkurinn telur góðan rekstur borgarinnar á flestum sviðum megi bæta og að ábyrgð stjórnenda fyrirtækja borgarinnar verði að vera skýrari. Einkaframtakið fái sitt svigrúm og skoðaðar verði leiðir til hagræðingar, en ekki í anda einkavæðingar síðustu ára og áratuga. Opin umræða og fagleg stjórnsýsla gegnumlýsi starfssemi borgarinnar.
Tenging útsvars við  málaflokka verði gerð skýrari og fjárframlög til stofnana og fyrirtækja borgarinnar verði þannig afmörkuð í  samræmi við settan ramma.

Efling atvinnulífs í borginni.
Í Reykjavík þarf með dirfsku og áræðni að vekja borgarana til átaks í úrræðum.
Grunnatvinnuvegir á borð við sjávarútveg eiga erindi við höfuðborgina. Iðnaðarframleiðsla þarf að eflast enn frekar og samtvinnast þekkingariðnaði. Ferðamannaiðnaðurinn verður vaxtabroddur og hlúa þarf að þeirri starfssemi.
Reykjavík á að verða griðarstaður sprotafyrirtækja og Frjálslyndi flokkurinn vill sækja fram með  atvinnusetrum í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur. Sprotafyrirtækjum verði veitt aðgengi að ódýru rafmagni og interneti. Með  því að hlú að atvinnusköpun getur Reykjavík orðið vaxtabroddur atvinnu að nýju. Það er hlutverk sem Frjálslyndi flokkurinn vill sjá höfuðborgina skapa sér.
Áherslur í atvinnulífinu eiga almennt að færast í austurátt og styðja þarf við þá viðleitni með öflugri samgönguæðum. Almenningsamgöngur þvert á úthverfi borgarinnar þarf að bæta og létta á umferð sem í of miklum mæli fer um miðborgina.
Atvinnuúrræði fyrir öryrkja sem og eldri borgara þurfa aukið rými innan borgarmarkanna. Við þurfum að veita þessum verðmætu einstaklingum tækifæri sem leyfir þeim að njóta sinna möguleika og opna þeim leiðir til að leggja fram til samfélagsins.
Efla þarf samvinnu háskólaumhverfisins og atvinnulífsins í verki. Reykjavíkurborg getur til dæmis aukið samstarf sitt við háskólaumhverfið varðandi þróun og notkun rafbíla. Reykjavík á að ganga á undan með góðu fordæmi og nýta bæði orkulindir okkar og mannauð.
Með kröftugu atvinnulífi og bættum samgöngum færist nýr neisti í borgina. Hér höfum við tækifæri til að skapa okkar framtíð, hér höfum tækifæri til að  leggja grunnstein að nýrri framtíð fyrir borgina.

 

 


UMHVERFIS-OG ORKUMÁL

 

Orkuveitan og Landsvirkjun verði áfram í eigu almennings
Frjálslyndi flokkurinn leggst alfarið gegn einkavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar og varar við því að fleiri auðlindir almennings komist í hendur fárra.
Orkuveita Reykjavíkur er mjög blómlegt fyrirtæki sem gefur góðan arð, og því leggst Frjálslyndi flokkurinn gegn hlutafélagsvæðingu þess eða öðrum breytingum á rekstri. Sökum endurtekinna ásakana um slæma stjórnsýslu Orkuveitu Reykjavíkur leggur Frjálslyndi flokkurinn til að óháð rannsóknarnefnd rannsaki störf stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur til að útkljá sannleiksgildi þessa orðróms.


Verndun óspilltrar náttúru í borginni


Náttúran í borgarlandinu verði vernduð umfram það sem nú er og aukin vegsemd þeirra lífsgæða sem eru fólgin í því að eiga Esjuna, mýrarfláka og ósnortna strönd eins og fjörurnar innan við  Geldinganes eru dæmi um.
Við viljum gæta sérstakrar varúðar við allar framkvæmdir í Elliðaárdal, enda einstakt að hægt sé að státa af laxveiðiá í borgarlandinu.


Mengun og sorphirða

Hrein borg, fögur torg eru einkunnarorð sem Frjálslyndi flokkurinn vill endurvekja.
Víða er hreinsun borgarinnar ábótavant. Við viljum að hreinsun í borginni verði efld.
Reykjavík verði vistvæn borg þar sem Staðardagskrá 21 er í hávegum höfð með raunhæfri vistvernd í verki, m. a. með flokkaðri sorphirðu heima við hús.
Ekki á að  innheimta gjald af íbúum þegar þeir koma með rusl til förgunar, þannig verður komið í veg fyrir að fólk freistist til að skilja eftir rusl á víðavangi.
Frjálslyndi flokkurinn leggur áherslu á að dregið verði úr mengun í borginni.
Áhersla verði lögð  á notkun sjálfbærra orkugjafa. 


 
SKIPULAGSMÁL


Frjálslyndi flokkurinn leggur nú sem áður áherslu á verndun menningarsögulegra minja. Sérstaklega ber að varðveita eldri götumyndir eins og við Laugaveginn, tengingu okkar við fortíð og rætur.
Frjálslyndi flokkurinn hefur stutt þá þéttingu byggðar sem nú á sér stað í mið  og vesturborg Reykjavíkur en hafnar alfarið hugmyndum um allt að 20.000 manna byggð í Vatnsmýri eða á landfyllingum við Örfirisey.
Ávallt skal tekið tillit til eldri byggðar við þéttingu og íbúum gefið færi á að vera þátttakendur í skipulagi frá upphafi.


 
Miðborg


Við viljum efla líf í miðborginni, t.d. Hljómskálagarði og að  miðborgin sé ávallt hrein og fögur.
Við erum fylgjandi staðsetningu öflugs háskóla- og vísindaþorps með áherslu á þekkingariðnað í Vatnsmýrinni. Mikilvægt er að tengja svæðið betur miðbænum.
Hafnir borgarinnar öðlist nýtt líf. Gamla höfnin í Reykjavík var sá hornsteinn sem borgarlífið byggðist á. Slagæð atvinnulífsins var þar og er að hluta ennþá. Frjálslyndi flokkurinn vill ekki að atvinnulífinu verði alfarið ýtt frá höfninni, heldur að þar verði blandað saman hafnsækinni starfsemi ásamt veitingahúsum, smærri verslunum og söfnum sem tengjast atvinnulífi og sjómennsku. Með þessu móti væri tryggt að sérstaða Íslands varðandi fiskveiðar væri í hávegum höfð í borginni og aðgengi að höfninni tryggt.


BORGARALEG VIRKNI OG HVERFALÝÐRÆÐI

 

Frjálslyndi flokkurinn leggur til að 10% kosningabærra einstaklinga geti farið fram á almennar kosningar um ákveðin mál í Reykjavík. Frjálslyndi flokkurinn telur nauðsynlegt að almenningur eigi þess kost að koma að stórum ákvörðunum í Reykjavík, ekki bara þeim smáu. Við gerum ráð fyrir því að undirskrift á lista fari fram á opinberum stofnunum. Ekki er gert ráð fyrir söfnun undirskrifta á netinu.
Frjálslyndi flokkurinn leggur einnig til að 25% kosningabærra einstaklinga í Reykjavík geti farið fram á nýjar borgastjórnakosningar. Á þann hátt sé möguleiki á því að koma í veg fyrir að óstarfhæfir meirihlutar verði að starfa öll fjögur árin.
Frjálslyndi flokkurinn telur að takmarka eigi þann tíma sem einstaklingar geta setið samfellt sem borgarfulltrúar. Þrjú kjörtímabil, þ.e. 12 ár er ásættanlegur hámarkstími sem borgarfulltrúi samfellt. Að öðrum kosti tapast sá eldmóður sem nýjir borgafulltrúar hafa óneitanlega í för með sér.
Frjálslyndi flokkurinn leggur ríka áherslu á íbúalýðræði og að aðkoma íbúa að ákvarðanatöku í umhverfis- og skipulagsmálum verði tryggð mun fyrr í ferlinu en nú er.
Hvert hverfi fái fast hluta útsvars íbúa sinna. Kjósa ber í hverfaráðin og það skal gera á 2 ára fresti.
Þá verði íbúum hverfa tryggt meira sjálfræði um ákvarðanir í nærumhverfi sínu, enda þekkir það enginn betur en þeir.
Þegar verk verða sýnilegri og færast nær íbúunum verður hvatning til virkrar þáttöku elfd og rekjanleiki fjár gagnsærri.
Frjálslyndi flokkurinn vill stefna að sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til hagsbóta fyrir alla aðila. Það er ljóst að það myndi spara skattgreiðendum stórfé ef unnt yrði að auka samstarf um skipulag, samgöngur og ákvarðanatöku. Hverri sveitarstjórn fylgir mikill kostnaður með tilheyrandi bæjar- eða hreppsskrifstofum og annarri yfirbyggingu.


ÖRYGGI OG LÖGGÆSLA


Sýnilegri löggæsla í hverfum borgarinnar
Lögreglan verði sýnilegri í umferðinni og á götum borgarinnar, en það snertir einnig öryggi borgaranna í víðu samhengi. Ofbeldi hefur aukist mjög í borginni og við viljum taka hart á slíkum brotum.
Frjálslyndi flokkurinn vill að Reykjavíkurborg sjái um löggæslu innan borgarmarkanna. Eins og þessum málum er háttað nú, er það dómsmálaráðherra sem mestu ræður um löggæsluna í borginni. Æskilegra er að starf borgarlögreglu sé skipulagt af borginni sjálfri, jafnvel í samvinnu við hverfastjórnir, með tilliti til þess hvar þörfin er brýnust hverju sinni.
Innbrotum hefur fjölgað  mikið og því er ljóst að hvetja ber til aukinnar nágrannagæslu.
Við teljum æskilegt að leita leiða til að bæta umgengni, s.s. minnka veggjakrot í samvinnu við hverfa-og íbúasamtök, félagsmiðstöðvar og lögreglu.

 

 

SAMGÖNGUR


 
Mislæg gatnamót

 


Mislæg gatnamót geta átt fullan rétt á sér og leysa oft miklar umferðaflækjur. Þegar spara þarf í rekstri borgarinna verðum við að leyta annarra lausna þangað til að tekjur borgarinnar aukast á nýjan leik. Hugsanlegt er að loka fyrir vinstri beygjur á ákveðnum gatnamótum. Á þann hátt myndi greiðast verulega úr umferð á stofnbrautum. Sem dæmi má nefna gatnamót Lönguhlíðar og Miklubrautar.
Auk þess kæmi til greina að leyfa hægri beygju á rauðu ljósi.


Stórbættar almenningssamgöngur-stefna skal að gjaldfrjálsum almenningssamgöngum.


Vegna núverandi efnahagsástands telur Frjálslyndi flokkurinn skynsamlegt að bjóða strætisvagnaferðir án endurgjalds. Takmarkið með slíkri ráðstöfun er tvíþætt. Í fyrsta lagi væri um að ræða aðstoð til einstaklinga í kreppu. Í öðru lagi munu stjórnvöld geta hagnast verulega.
Þar sem ráðstöfunartekjur hafa minnkað verulega hjá almenningi og sérstaklega hjá barnafjölskyldum mun þessi ráðstöfun hjálpa þeim fjölskyldum til að ná endum saman.
Hagnaður stjórnvalda verður umtalsverður. Þar sem gjaldeyrir er okkur Íslendingum mjög mikilvægur meðan á kreppunni stendur verður þessi hagnaður enn dýrmætari en ella. Um er að ræða minni eldsneytis-, bíla- og varahlutakaup fyrir þjóðarbúið. Minna slit á umferðarmannvirkjum. Minni þörf á stækkun eða nýjum umferðarmannvirkjum. Umferðarslysum fækkar. Minni mengun frá bílaumferð.
Til að ná tilsettum árangri í sparnaði fyrir þjóðfélagið er nauðsynlegt að einstaklingar vilji nýta sér almenningssamgöngur. Frjálslyndi flokkurinn leggur til eftirfarandi:
1. Strax haustið 2010 geta börn og námsmenn ferðast frítt.
2. Samtímis verður farið í endurbætur á leiðarkerfi strætisvagna svo það mæti kröfum almennings.
3. Þar sem ríkissjóður mun spara dýrmætan gjaldeyri og kostnaður við vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu mun minnka er raunhæft að leita samstarfs við ríkisstjórnina um þessa áætlun.
4. Þegar almenningssamgöngukerfið er reiðubúið munu strætisvagnaferðir verða gjaldfrjálsar fyrir alla. Mun þessi ráðstöfun vara meðan efnahagskreppan er til staðar. Hér bætist við sparnaður þar sem öll umsýsla með greiðslur fellur niður. Auk þess munu vagnarnir verða fljótari í förum þar sem ekki þarf að taka við greiðslu og hægt er að nota alla innganga samtímis til inn og útgöngu úr vögnunum.
5. Til framtíðar mun þetta skila mun öflugra almenningssamgöngukerfi og borgarbúar munu þá væntanlega hafa tileinkað sér ferðamáta með almenningssamgöngum.

 

Flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni


Það yrðu óafturkræf mistök að missa Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni. Í Vatnsmýri er flugvöllurinn vel staðsettur m. t. t. innanlands-, sjúkra-og öryggisflugs og einnig sem ómissandi varaflugvöllur fyrir millilandaflugið.
Um þýðingu flugvallarins fyrir samgöngur og öryggismál á landinu öllu og fyrir atvinnulíf í Reykjavík þarf ekki að fjölyrða. Þeir valkostir innan höfuðborgarsvæðisins sem nú er rætt um eru mun lakari.
Allt tal um fjárhagslegan ávinning af því  að flytja flugvöllinn upp á Hólmsheiði eða út  á Löngusker er byggt á útrásarhugsun anno 2007.
Fyrirætlanir um allt að 20.000 manna byggð í Vatnsmýri eru ekki raunhæfar vegna þeirrar umferðarteppu sem hlytist af aukinni umferð bíla inn á Hringbrautina sem næmi 60.000 bílum á sólarhring. Reykjavíkurflugvöllur á hins vegar samleið með því  þekkingar-og vísindaþorpi, sem rísa á í Vatnsmýrinni.
Frjálslyndi flokkurinn er fylgjandi beinu lýðræði. Þess vegna er framtíð Reykjavíkurflugvallar kjörið ágreiningsefni til að fara með í þjóðaratkvæðagreiðslu.

 

Sundabraut í sátt við íbúana


Við auknum umferðarþunga þarf að bregðast með eflingu stofnbrauta. Frjálslyndi flokkurinn vill að lega Sundabrautar taki mið af þróun til framtíðar og að hún verði lögð í sátt við íbúa borgarinnar. Við val á útfærslu verði lögð áhersla á að tryggja vellíðan íbúa og náttúruvernd.


Vistvæn borg


Göngu-og hjólreiðastígar með góðri lýsingu og merkingum ásamt góðu aðgengi að  útivistarsvæðum, sem bjóða upp á aðstöðu til leikja og íþrótta fyrir börn og unglinga er mikilvæg forsenda þess að  almenningsgarðar verði meira nýttir en verið hefur.
Reiðhjól verði raunhæfur samgöngumáti.
 F¬rjálslyndi flokkurinn bendir á  að ekki hefur enn tekist að koma á sameiginlegu göngu- og hjólreiðastígakerfi á höfuðborgarsvæðinu, en það myndi auka mjög lífsgæði íbúa þess.

Önnur útivist


Áherslu ber að leggja á að vernda strandlengjuna, þannig að fólk geti notið útiveru í óspilltu umhverfi.
Auka þarf umhverfisfræðslu og þar með skilning á mikilvægi umhverfisþátta í  borginni.

 LÝÐHEILSA

 

Hollusta og heilbrigði


Borgin stuðli að auknu heilbrigði. Þar með er talið að vinna að því að borgarbúar hafi fullan skilning og þekkingu á gildi þess að viðhalda heilbrigði með góðum lífsháttum. Reykjavíkurborg geri sitt til að borgarbúar hafi tök á að stunda góða lífshætti. Þáttur í þeirri viðleitni er að skapa þau skilyrði hjá borgarbúum að allur tími þeirra fari ekki í að eiga fyrir nauðsynjum, heldur að einstaklingar hafi tíma og þrek til að stunda heilbrigt líferni. Það er ekki stefna Frjálslynda flokksins að það sé munaður að halda sér heilbrigðum.
Aukin áhersla á  að gera öllum kleift að iðka íþróttir og tómstundir við hæfi, því verði aukin áhersla á að koma upp viðeigandi aðstöðu fyrir almennings-og jaðaríþróttir


Forvarnir


Reykjavíkurborg leggi ríka áherslu á fræðslu-og forvarnarhlutverk grunnskóla, félagsmiðstöðva, íþróttafélaga og frjálsra félagasamtaka í samstarfi við  foreldra.

 

Verndun náttúru- og menningarminja


Frjálslyndi flokkurinn hefur haft mikla sérstöðu í borgarstjórn Reykjavíkur varðandi verndun náttúru- og menningarminja í borgarlandinu. Sem dæmi má nefna verndun útivistarsvæða og grænna svæða og ósnortinnar náttúru borgarlandsins.

 

 


FJÖLMENNING


Standa þarf vörð um réttindi innflytjenda og tryggja þeim félagslegt jafnrétti, íslenskukennslu og að menning þeirra fái notið sín.  Borgaryfirvöldum ber skylda til að upplýsa innflytjendur um réttindi þeirra og skyldur í borgarsamfélaginu.
Upplýsingavefir Reykjavíkurborgar skulu þýddir á öll helstu tungumál íbúa borgarinnar.
Mikilvægt er að stuðla að stórri fjölmenningarhátíð í Reykjavík.


                                                                                                          Reykjavík 11. Maí 2010.

 
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara