Gullkistan_L
« Maí 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Þriðjudagur, 02 Nóvember 2010 20:42

Er þolinmæðin á þrotum Forsíða

Skrifað af  Gunnar Skúli Ármannsson

Vonbrigði almennings eru mikil í dag. Að sjálfsögðu var það þungbært þegar bankahrunið lagði þjóðfélagið nánast í rúst. Þrátt fyrir það voru Íslendingar reiðubúnir til að taka á og vinna sig af hörku í gegnum erfiðleikana. Búsáhaldarbyltingin skilaði okkur svonefndri vinstri stjórn undir forystu Jóhönnu og Steingríms. Miklar vonir voru bundnar við nýju ríkisstjórnina. Það var reyndar ekki að ósekju að þjóðin héldi að nú yrði tekið til hendinni eftir öll kosningaloforðin. Fyrir kosningarnar sögðu núverandi ríkisstjórnarflokkar að kvótinn yrði innkallaður og strandveiðar settar á fullt. Minniháttar strandveiðar er það sem þjóðin hefur haft upp úr krafsinu.

 

Í raun má segja að flest öll kosningaloforðin hafi ekki enn litið dagsins ljós hjá núverandi ríkisstjórn, nema ESB umsóknin. Afleiðingar aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar hafa valdið aukinni óánægju meðal þjóðarinnar. Það sem fólk gagnrýnir helst er vaxandi fátækt og sú staðreynd að biðraðir eftir matargjöfum eru orðinir fastir liðir. Að ekki sé komin fram nein lausn sem kemur í veg fyrir að fólk sé rekið út af heimilum sínum veldur sívaxandi gremju. Þegar einstaklingar missa aleiguna og þurfa að brjóta upp heimili sitt með ófyrirséðum afleiðingum fyrir börnin þá er hætt við miklum og sterkum viðbrögðum.

Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar ræða þess í stað um að fátækt hafi verið til áður og þá gerði jeppaliðið ekkert í málunum. Menn hafi reist sér hurðarás um öxl. Séu málpípa íhaldsins. Vilji fá afskriftir af lúxusvillum. Það taki langan tíma að hreinsa upp skítinn og þess háttar.

Nei fólk er að mótmæla óréttlæti. Ákveðnir aðilar og fyrirtæki fá afskriftir sem nemur milljörðum. Á meðan á fólk ekki fyrir mat og missir aleiguna til banka. Þetta finnst fólki vera óréttlæti. Að menn geti ekki viðurkennt neyð fólks sökum skorts á pólitískum rétttrúnaði viðkomandi mun valda mikilli reiði. Það hefur stundum endað með ósköpum en vonandi förum við ekki alla þá leið. Vonandi munu stjórnvöld átta sig áður hvað til friðar þeirra heyrir.

Síðast breytt Þriðjudagur, 02 Nóvember 2010 21:26
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara