Fjárstyrkur sem Frjálynda flokknum bar árið 2008 var lagður vorið 2008 inn á nýstofnað einkahlutafélag sem átti lögheimili á heimili Ólafs F. Magnússonar, þá borgarstjóra í Reykjavík. Sá gjörningur var lögleysa og má margt segja um þá embættisfærslu.
Eftir að Hanna Birna Kristjánsdóttir tók við sem borgarstjóri stöðvaði hún þessa óeðlilegu meðferð á fjárstyrk til stjórnmálaflokka og kyrrsetti fjárstyrk sem tilheyrði Frjálslynda flokknum innan borgarkerfisins. Allir aðrir flokkar fengu sína styrki greidda eins og áður í upphafi hvers árs. Hún ákvað að leita álits sveitarstjórnarráðuneytisins um hvort einkahlutafélagi því sem Ólafur F. stofnaði eða Frjálslynda flokknum bæri að fá fjárstyrkinn samkvæmt lögum og gerðum við í Frjálslynda flokknum ekki athugasemd við þá málsmeðferð. Niðurstaða sveitarstjórnarráðuneytisins var skýr um að Frjálslynda flokknum einn ætti rétt til að fá styrkinn greiddan eins og segir í niðurlagsorðum bréfs samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. frá 4. febrúar 2010.
Svohljóðandi:
Það er óumdeilt að Frjálslyndi flokkurinn eru þau stjórnmálasamtök sem buðu fram F-lista frjálslyndra og óháðra í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 2006, sbr. bréf til yfirkjörstjórnar dags. 6. maí 2006 og að listinn fékk 1 mann kjörinn og 10,1 % atkvæða. Þá telur ráðuneytið að það verklag Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar varðandi greiðslu fjárframlagsins ekki hafa þýðingu í máli þessu og tekur enga afstöðu til þess.
Með vísan til alls þess sem að framan greinir er það álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að Frjálslyndi flokkurinn eigi rétt til framlagi Reykjavíkurborgar sem veitt er á grundvelli 5. gr. laga nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálalfokka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra.
Að þessu áliti fengnu var framlagið fyrir árið 2009 greitt Frjálslynda flokknum án þess að vextir væru greiddir vegna tafa á greiðslu í eitt ár eða frá árinu 2009 til 2010. Frjálslyndi flokkurinn sendi bréf til borgarstjóra þann 31. mars 2010 og óskaði eftir því að farið yrði að lögum nr.162/2008 og úrskurði sveitarstjórnarráðuneytisins frá 4. febrúar 2010. Ekki náðist að ljúka uppgjöri málsins áður en ný borgarstjórn tók við völdum í júní 2010. Núna hefur nýr borgarstjóri setið við völd í nokkra mánuði og hvorki gengur né rekur að leiðrétta þessa embættisfærslu sem bitnað hefur harkalega á starfsemi Frjálslynda flokksins. Við höfum en vilja til þess að leysa þetta mál með núverandi stjórnendum Reykjavíkurborgar og óskum þess enn og aftur að það verði gert hið fyrsta. Sveitarstjórnarráðuneytinu verðu sent afrit af bréfi þessi og gerð grein fyrir ótrúlegum seinagangi í málsmeðferð sem orðin er þrátt fyrir skýr tilmæli ráðuneytisins.
Nú eru liðnir níu mánuðir síðan niðurstaða sveitarstjórnarráðuneytisins lá fyrir í byrjun febrúar og forystumenn Frjálslynda flokksins eru vægast sagt orðnir undrandi á því að stjórnendur borgarinnar vilji ekki fara að lögum og þeim úrskurði frá sveitarstjórnarráðuneytinu sem fyrrum borgarstjóri Hanna Birna Kristjánsdóttir óskaði eftir og fékk.
Frjálslyndi flokkurinn hlýtur að beina þeim tilmælum til ráðherra sveitarstjórnarmála að hann kanni hvers vegna núverandi borgarstjóri Jón Gnarr fer ekki að lögum og tilmælum ráðuneytisins í þessu máli.
Sigurjón Þórðarson
formaður Frjálslynda flokksins
Guðjón Arnar Kristjánsson
formaður fjármálaráðs Frjálslynda flokksins.




Ásta Hafberg




