Gullkistan_L
« Júní 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Föstudagur, 29 Apríl 2011 10:52

Ályktun Frjálslynda flokksins vegna "tilboðs" Jóhönnu Sigurðardóttur til LÍÚ um að festa í sessi kvótakerfið

Skrifað af  Sigurjón Þórðarson

badge_60x60_jpgStjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með þær fréttir að ríkisstjórn Íslands hyggist festa í sessi illræmt kvótakerfi til áratuga, sem mismunar landsmönnum og særir réttlætisvitund almennings. Ljóst má þykja að þeir ráðamenn sem samþykkja slíka ósvinnu geta verið sóttir til saka fyrir að fara gegn stjórnarskránni.

Stjórn Frjálslynda flokksins hvetur til þess að sjómenn íhugi að láta reyna á ólögin um stjórn fiskveiða sem brjóta í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og halda til veiða.

29. apríl 2011

Sigurjón Þórðarson, formaður Ásta Hafberg, varaformaður Grétar Mar Jónsson ritari

Síðast breytt Föstudagur, 29 Apríl 2011 11:11
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara