Sigurjón Þórðarson formaður,
Reykjavík, þann 15. okt. 2011

Miðstjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við alheimsmótmælin í dag þann 15 október, gegn spilltu samkrulli fjármála og stjórnmála. Það hefur sýnt sig eftir hrun íslensku bankanna og efnahagsvanda hins vestræna heims, að mikilla breytinga er þörf á núverandi fjármálakerfi.
Stjórnmálastéttin heyrir ekki lengur í almenningi og hefur gjáin á milli ráðandi afla og almennings breikkað. Í stað þess að stjórnmálin taki mið af hag almennings þá ræðst ákvarðanataka í meira mæli af þröngum sérhagsmuna- og peningaöflum.
Frjálslyndi flokkurinn álítur þörfina fyrir kerfisbreytingar vera brýna og mótmælir leyndarhyggju stjórnvalda og að aftur sé verið að blása upp bankakerfið á fölskum forsendum.
Sigurjón Þórðarson formaður,
Reykjavík, þann 15. okt. 2011