Stjórn Frjálslynda flokksins fagnar framboði Ólafs Ragnars Grímssonar til embættis
forseta Íslands og hvetur fólk til að styðja framboð hans. Ólafur Ragnar hefur
staðið með þjóðinni og verið öflugur talsmaður Íslands á alþjóðavettvangi þegar mest
á reynir og hallað hefur á málstað Ísland og hefur rödd forsetans á þeim stundum
verið ómetanleg.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur fyrstur forseta virkjað 26.gr
stjórnarskrárinnar sem kveður á um málskotsrétt til þjóðarinnar og með því sýnt
einlægan lýðræðisvilja sinn í verki.
Stjórn Frjálslynda flokksins telur að á þeim erfiðu tímum sem framundan eru á
Íslandi og skýrskotar stjórn Frjálslynda flokksins t.d. til undirbúnings nýrrar
stjórnarskrár og auðlindamála, vanda heimilanna og samskipta Íslands á erlendum
vettvangi, þá sé reynsla og þekking Ólafs Ragnars Grímssonar á forsetastóli
íslenskum almenningi nauðsynleg.
Styrkja flokkinn
Bankanúmer: 137-26-123456
Kennitala: 480998-2359
Kennitala: 480998-2359
Sunnudagur, 04 Mars 2012 20:22
Stjórn Frjálslynda flokksins fagnar framboði Ólafs Ragnars Grímssonar Forsíða
Skrifað af Sigurjón Þórðarson
Lesa 3381 tímar
Flokkur
Fréttir




Ásta Hafberg




