- lögð fyrir framhaldsstofnfund sunnudaginn 18. mars 2012 á Grand hóteli kl. 14.00 – 17.00
Breiðfylking um framboð til næstu alþingiskosninga sem leggja mun áherslu á brýna hagsmuni almennings er sammála um
neðangreindan stefnuramma. Öllum sem fallast á forgang þessara mála er boðið til þátttöku.
Við leggjum áherslu á að hrinda í framkvæmd mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar og að verða það breytingaafl sem íslensk stjórnmál skortir svo mjög.
Öflugar aðgerðir í þágu heimila
Leysa verður skuldavanda heimilanna með róttækum hætti og bæta aðstöðumun almennings gagnvart fjármálavaldinu.
Leita skal lausna á forsendum lántakandans frekar en lánveitandans. Við viljum tafarlaust afnám verðtryggingar á neytendalánum
og almenna leiðréttingu húsnæðislána. Þá viljum við að lágmarks framfærsluviðmið verði lögfest og að vextir í landinu verði hóflegir.
Lýðræðisumbætur - Ný stjórnarskrá
Ný stjórnarskrá fólksins komi sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis. Við teljum frumvarp Stjórnlagaráðs mikilvægt skref í átt til virkara
lýðræðis og að þjóðin eigi að fá að kjósa um það. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja tafarlaust með lögum eftirfarandi rétt
almennings: Persónukjör samhliða flokkakjöri. Kjósendur hafi rétt til að kjósa á milli einstaklinga og framboðslista.
Þjóðaratkvæðagreiðslur óski 10% kjósenda þess. Íbúar kjördæma eða sveitarfélaga geti átt frumkvæði að atkvæðagreiðslu um
sameiginleg hagsmunamál svæðisins óski 10% kjósenda þess. Sjálfstæði sveitarfélaga verði aukið og nálægðarreglan í heiðri höfð.
Ákvarðanir verði teknar á því stjórnsýslustigi sem næst er málinu sjálfu.
Skipan auðlindamála og uppstokkun á stjórn fiskveiða
Orkufyrirtæki verði í eigu ríkis og / eða sveitarfélaga og nýting allra náttúruauðlinda til sjós og lands sjálfbær.
Auk þeirra breytinga sem ný stjórnarskrá að forskrift Stjórnlagaráðs hefur í för með sér fyrir skipan auðlindamála
er nauðsynlegt að stokka upp stjórn fiskveiða frá grunni. Tryggja þarf aðskilnað veiða og fiskvinnslu og að jafnræði ríki
meðal landsmanna við nýtingu á sameiginlegum fiskveiðiauðlindum. Hámarka skal arð þjóðarinnar af auðlindum hennar.
Virða skal álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Allur ferskur fiskur skal seldur á fiskmörkuðum.
Siðvæðing stjórnsýslu og fjármálakerfis
Efla ber siðferði og gegnsæi í stjórnmálum, stjórnsýslu og fjármálakerfinu. Nauðsynlegt er að þessir aðilar vinni eftir skýrum
siðareglum. Lög verði yfirfarin með því markmiði að fyrirbyggja spillingu og herða viðurlög við henni.
Tryggður verði aðgangur almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af.
Þann aðgang má aðeins takmarka með lögum í lýðræðislegum tilgangi, svo sem til að tryggja persónuvernd.
Komið verði í veg fyrir óeðlileg völd sérhagsmunaaðila og skilið á milli stjórnmála og viðskiptalífs.
Bankaleynd skal afnumin að undanskildu því sem lög um persónuvernd kveða á um. Tryggt verði að eftirlitsstofnanir
ásamt efnahags og viðskiptanefnd Alþingis hafi ávalt fullar rannsóknarheimildir gagnvart fjármálafyrirtækjum.
Lagalegt réttlæti og afdráttarlaust uppgjör við hrunið
Gera þarf ráðstafanir til að endurheimta illa fengið fé aðalgerenda í svonefndri útrás og höfða skaðabótamál á hendur þeim.
Samfélag þar sem glæpir borga sig er ekki hægt að sætta sig við. Ganga þarf sérstaklega eftir því að sinnt verði brýnum
rannsóknarefnum sem ætla má að hinir gamalgrónu stjórnmálaflokkar séu tregir til að láta rannsaka. Tryggja þarf góð
starfsskilyrði sérstaks saksóknara og annarra sem koma að rannsókn efnahagsbrota í tengslum við Hrunið.
Almenningur hafi aðgang að öllum upplýsingum sem rannsakendur Hrunsins afla, enda séu ekki sérstök rök fyrir því að halda
þeim leyndum. Öllum skal gert kleift að leita réttar sins og verjast fyrir dómstólum, óháð efnahag.
Evrópusambandið
Við leggjum áherslu á opið og lýðræðislegt ferli, óháða upplýsingagjöf og fræðslu og treystum þjóðinni til að ráða niðurstöðunni.
Ef aðildarviðræðum verður ekki lokið fyrir samþykkt nýrrar stjórnarskrár og þjóðin ákveður að hætta aðildarviðræðum í samræmi
við 66. grein frumvarps Stjórnlagaráðs, munum við styðja þá niðurstöðu.Að öðrum kosti verði aðildarviðræður við Evrópusambandið
kláraðar og niðurstaðan borin undir þjóðaratkvæði.




Ásta Hafberg




