Þorrablót og Landsþing Frjálslynda flokksins
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonÞorrablót Frjálslynda flokksins verður haldið laugardagskvöldið 26. janúar nk. og daginn eftir eða sunnudaginn 27. janúar verður landsþing Frjálslynda flokksins sett kl. 13 að Brautarholti 4 í Reykjavík.
Dagskrá landsþings:
Kosning fundarstjóra, fundarritara og annarra starfsmanna.Skýrsla framkvæmdastjórnar.
Grein gerð fyrir reikningum flokksins.
Skipan í málefnanefndir.
Kosningar í embætti.
Umræður um nefndarálit.
Stjórnmálaályktun.
Alþingiskosningar 2013.
Önnur mál.
Ný stjórnmálasamtök stofnuð 18. mars 2012 kl. 14 – 17.
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonFramhaldsstofnfundur nýrra stjórnmálasamtaka verður haldinn á Grand hóteli sunnudaginn 18. mars 2012 kl. 14 – 17. Hér að neðan eru drög að kjarnastefnu.
Gefinn er kostur á að senda inn skriflegar breytingartillögur við drögin og skulu þær hafa borist bráðabirgðaframkvæmdaráði fyrir miðnætti að kvöldi hins 11. mars 2012. Breytingartillögur er hægt að senda á Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið
Drög að kjarnastefnu nýrra stjórnmálasamtaka
Samráðsfundur Frjálslynda flokksins - laugardaginn 3. desember
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonSamráðsfundur Frjálslynda flokksins
Dagskrá:
1. Setning , Sigurjón Þórðarson, formaður.
2. Styrmir Gunnarsson, þjóðfélagsrýnir og fyrrverandi ritstjóri.
3. Lýður Árnason, læknir og stjórnlagaráðsfulltrúi. Fyrirspurnir og umræður.
14:30 Kynning vinnuhópa: a) Guðjón Arnar Kristjánsson, velferðar og tryggingamál. b) Ásta Hafberg, lýðræði og stjórnsýsla. c) Grétar Mar Jónsson, auðlindir og sjávarútvegur. d) Sigurjón Þórðarson, landbúnaðar- og umhverfismál, samráð við aðra flokka og hreyfingar.
17:30 Samantekt vinnuhópa kynnt og umræður til 18:30.
20:30 Sameiginleg jólaglögg í Grasrótarmiðstöðinnni.
Fundur Frjálslynda flokksins hefst klukkan 13, laugardaginn 3. desember 2011, í Grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4, Rvík.
Fundur landsráðs Frjálslynda flokksins verður þann 3. desember í Reykjavík
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonMiðstjórn Frjálslynda flokksins ákvað á síðasta fundi sínum að boða til landsráðsfundar og verður fundurinn haldinn að Brautarholti 4 í Reykjavík, laugardaginn 3. desember 2011.
Á fundinum verður m.a. rætt um samvinnu og samstarf við aðra hóp og hreyfingar sem deila með flokknum húsnæði í grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4 í Reykjavík. Dagskrá fundarins verður send út til flokksmann Frjálslynda flokksins á næstu dögum en hægt er að gera tillögu að dagskrárefni með því að senda formanni eða varaformanni tillögur.
Sigurjón Þórðarson formaður
Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið
Kaffispjall í Grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonFundur Frjálslynda flokksins og Þjóðarflokksins um sjávarútvegsmál, laugardaginn 22. október
Skrifað af Sigurjón Þórðarsonásamt fulltúum Þjóðarflokksins fjalla um sjávarútvegsmál á opnum fundi.
Fundurinn verður haldinn í nýju húsnæði Frjálslynda flokksins, að Brautarholti 4, Reykjavík sem flokkurinn deilir með ýmsum öðrum grasrótarsamtökum.
Allir velkomnir
Sigurjón Þórðarson
formaður
Leikaraskapurinn í kringum kjarasamningana er orðinn langdreginn og þreyttur. Beggja vegna borðsins sitja forystumenn sem voru beinir þátttakendur í hruninu þar sem þeir spiluðu með útrásarvíkingum með lífeyrispeninga landsmanna. Báðir hafa þeir varið kröftum sínum í að endurreisa og varðveita þau kerfi sem ollu hruninu. Báðir voru sammála um að samþykkja Icesave, viðhalda óbreyttu lífeyrissjóðakerfi og verðtryggingu. Sömuleiðis leggja báðir mikla áherslu á svo undarlegt sem það nú er, að verja óbreytt kvótakerfi sem skilar víst helmingi minni botnfiskafla á land en veitt var fyrir tveimur áratugum. Kvótakerfið sem forysta ASÍ og SA vill verja hvetur ennfremur til sóunar verðmæta og var upphaf loftbóluhagkerfisins.
Opinn fundur um sögu peninganna og nýtt fjármálakerfi
Skrifað af Gunnar Skúli ÁrmannssonOpinn fundur verður á vegum Frjálslynda flokksins laugardaginn 5. febrúar kl 13:00 að Lynhálsi 3.
Efni: Peningar, hvað eru peningar, hvernig og hver skapar þá? Nýtt fjármálakerfi kynnt.
Flytjandi: Jón Lárusson og Gunnar Skúli Ármannsson
Almennar umræður að lokinni framsögu.
Allir velkomnir og kaffi á könnunni.
Virkjum Grundarfjörð - Fundur um sjávarútvegsmál í Grundarfirði fimmtudaginn 13. janúar nk
Skrifað af Sigurjón ÞórðarsonVísasta leiðin til þess að koma þjóðinni út úr kreppunni er að virkja sjávarbyggðirnar s.s. Grundarfjörð með því að gjörbreyta fiskveiðistjórnarkerfinu.
Á fimmtudagskvöldið munu Sigurjón Þórðarson og Guðjón Arnar Kristjánsson fjalla um hvernig best sé að haga málum fyrir land og þjóð. Fundurinn verður haldinn í Sögusetrinu kl: 20 þann 13. janúar nk.





Ásta Hafberg




