Þingmál

Þingmál (1)

Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 15:24

Þingmál

Skrifað af

Þingmál 2006-2007.

 

MÁLALISTI FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS VIÐ BYRJUN 133. ÞINGS (2006-2007
Nánari upplýsingar um hvert mál má finna á vef Alþingis,
www.althingi.is, undir nafni þess alþingismanns sem er fyrsti flutningsmaður. Einnig er hægt að finna öll þingmál þingmanna Frjálslynda flokksins vel uppfærð undir nafnatenglum þeirra hér að ofan.


1) Till. til þingsályktunar um láglendisvegi. (GAK, MÞH, SÞ)
Vegagerðinni verði falið að vinna tillögur sem byggist á því að allar helstu leiðir á þjóðvegi 1, Vestfjörðum og norðausturhluta landsins verði á láglendi, undir 200 m hæð yfir sjó. Einkum verði lagt til grundvallar aukið öryggi og stytting leiða milli suðvesturhornsins og annarra landsvæða, svo og innan landsvæða.
Megináhersla verði lögð á jarðgöng og þverun fjarða við útfærsluna og horft til mesta mögulega sparnaðar miðað við 50 ára notkun mannvirkja. Lagt verði mat á ávinning af hugsanlegri fækkun flugvalla og hafskipahafna vegna bættra samgangna.

2) Till. til þál. um afnám verðtryggingar lána (SÞ, GAK, MÞH)
Alþingi ályktar að fela viðskiptaráðherra að hefja nú þegar undirbúning þess að afnumin verði verðtrygging húsnæðislána.

3) Till. til þál. um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar og fiskvinnslu (GAK ofl)
Tillagan kveður á um skipan nefndar sem geri tillögu að lagabreytingu um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Þar með kæmust á eðlileg og heiðarleg viðskipti innan sjávarútvegsins þar sem ruanverulegar greiðslur yrðu að fara á milli fyrirtækja, þó svo sömu eigendur væru bæði að veiðum og vinnslu.

4) Frv. til laga um textun (GAK, SÞ, KolH, GÖgm, BGS, KJúl)
Markmið laga þessara er að tryggja heyrnarskertum og heyrnarlausum aðgang að upplýsingum, afþreyingar- og fræðsluefni til jafns við þá sem hafa fulla heyrn.


5) Frv. til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (GAK, MÞH, SÞ)
Frumvarpið kveður á um að launþegar megi draga frá tekjum sínum kostnað við ferðalög til og frá vinnu. Miðað er við að kostnaður umfram 120.000 kr. á ári, allt að 400.000 krónum, megi launþeginn draga frá tekjum.

6) Frv. til laga um breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum (GAK, MÞH, SÞ)
Það hefur löngum verið réttur Íslendinga við sjávarsíðuna að fá að róa til fiskjar og útróðrajarðir voru líklegri til þess að brauðfæða fólkið og gefa tekjur en þær jarðir sem illa lágu við fiskislóð. Útróðraréttur var metinn sem verðmæti í jörðum og talinn til hlunninda. Í gömlum lögum var öllum tryggður veiðiréttur í fjörðum og flóum. Þannig orðað að rétt ættu menn til fiskveiði sinnar nema síldveiði sem öllum væri heimilt að stunda hvar sem væri. Landsmenn áttu þannig allir tryggan forgang til botnfiskveiða næst sínum byggðum. Með þessu frumvarpi verður þeim sem rétt hafa til þess að stjórna skipum veittur þessi veiðiréttur á nýjan leik.


7) Frv. um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum. (MÞH, GAK, SÞ)
Lagðar eru til breytingar á lögum vegna innheimtu virðisaukaskatts af samgöngumannvirkjum

8) Þál. um afnám stimpilgjalds. SÞ, GAK, MÞH
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að afnema álagningu stimpilgjalda í áföngum á næstu fjórum árum.

9) Frv. um breytingu á lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, með síðari breytingum (GAK, MÞH, SÞ)
Meginefni frumvarpsins er að bæta réttarstöðu launþega þegar samningsgerð hefur dregist mánuðum saman. Frumvarpið kveður á um að dragist samningsgerð lengur en 6 mánuði, eigi launþegar rétt á að umsamdar launabætur virki aftur í tímann, allt að þrem mánuðum. Dragist samningar lengur en 12 mánuði, kveður frumvarpið á um að kjarasamningsákvæði séu afturvirk frá því að samningur féll úr gildi.

10) Till. til þál. um útvarp frá Alþingi (MÞH, GAK, SÞ, KolH)

11) Frv. um breytingu á áfengislögum nr. 75/1998 (GAK, DrífaHj, KolH, GÖgm, BJB)
Léttvín (matarvín) verði lögleg til framleiðslu og einkanota á heimilum. Samkv. frv. er einungis heimilt að framleiða vín undir 15% styrkleika alkóhóls. Með samþykki þessa frv. yrði lögum breytt þannig að fjölmargir þegnar landsins yrðu ekki lögbrjótar við slíka iðju eins og nú er.

12) Till. til þál. um úttekt rafmagnsverðs (SÞ – stjórnarandstaðan)
Gerð verði úttekt á því hvaða breytingar hafa orðið á rafmagnsverði til almennra notenda og fyrirtækja í kjölfar breytinga sem urðu á skipulagi raforkumarkaðarins áramótin 2004/2005. Gerð verði grein fyrir þróun raforkuverðs sundurliðað eftir helstu notendaflokkum og gjaldskrársvæðum. Niðurstaða úttektarinnar, sem nái til allra tegunda viðskipta með raforku, liggi fyrir 15. febrúar 2007.

13) Kirkjuskipan ríkisins. (GAK, MÁ, ÁSJ)
Frumvarpið kveður á um aðskilnað ríkis og kirkju. Lagt er til að ef frumvarpið verði samþykkt, fari í kjölfarið fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort aðskilnaði ríkis og kirkju skuli fylgt fram skv. frumvarpinu. Samþykki þjóðin aðskilnað ríkis og kirkju í slíkri atkv.greiðslu, skipar dóms- og kirkjumálaráðherra 5 manna nefnd til frekari undirbúnings málsins. Gert er ráð fyrir að fullur aðskilnaður gæti náðst á 5 árum þaðan í frá.

14) Till. til þál. um afnám stimpilgjalda (SÞ, GAK, MÞH)
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að afnema álagningu stimpilgjalda í áföngum á næstu fjórum árum.

15) Till. til þál. um skipan nefndar sem meti kosti og galla færeyska fiskveiðistjórnarkerfisins (MÞH, GAK, JG)
Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að skipa nefnd sem meti kosti og galla færeyska fiskveiðistjórnarkerfisins. Í nefndinni verði fulltrúar frá hverjum þingflokki á Alþingi, Háskóla Íslands, sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri og sjávarútvegsráðherra og skipi ráðherra jafnframt formann nefndarinnar.


Þá er unnið að undirbúningi fleiri þingmála í samræmi við stefnu flokksins.
Einnig eru fyrirspurnir oft lagðar fram. UPPFÆRT Í OKT. 2006

 


Þingmál 2004-2005.

 

Málalisti
Frjálslynda flokksins á 131. þingi (2004-2005):

Frumvarp um stéttarfélög og vinnudeilur (GAK)
Frumvarpið á að bæta réttarstöðu launþega þegar samningsgerð hefur dregist mánuðum saman. Dragist samningsgerð lengur en 6 mánuði eigi launþegar rétt á að umsamdar launabætur virki aftur í tímann, allt að 3 mánuðum. Dragist samn. lengur en í 12 mán. kveður frv. á um að kjarasamningsákvæði séu afturvirk frá því samningur féll úr gildi.

Frumvarp um textun sjónvarpsefnis (GAK, KolH, GÖgm, BjörgvinS ofl.) Markmið laga þessara er að tryggja heyrnarskertum og heyrnarlausum aðgang að upplýsingum, afþreyingar- og fræðsluefni til jafns við þá sem hafa fulla heyrn.

Tillaga til þál. Landið eitt kjördæmi (Þingflokkur)
Skipuð verði nefnd allra þingflokka til að endurskoða kjördæmaskipan. Nefndin skal hafa að markmiði að jafna atkvæðisrétt landsmanna þar sem landið verði eitt kjördæmi.

Tillaga til þál. um tryggan lágmarkslífeyri (Þingflokkur)
Lagt er til að bæta stöðu lífeyrisþega sem fá minni lífeyri greiddan úr lífeyrissjóði sínum en 50 þús. kr. á mán. Bótareglum almannatrygginga verði breytt þannig að lífeyrisgreiðslur undir þeirri upphæð skerði ekki grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót eða aðrar bætur lífeyrisþegans.

Tillaga til þál. um breytingu á kennitölukerfi (SÞ)
Lagðar til breytingar á kennitölukerfi þannig að engar persónuupplýsingar felist í kennitölum.

Tillaga til þál. um skráningu nafna í þjóðskrá (SÞ)
Lagt til að ráðin verði bót á því að löng nöfn skuli ekki vera skráð í þjóðskrá fullum stöfum.

Frumvarp um breytingu á lögreglulögum (SÞ)
Lagt er til að innheimtu löggæslukostnaðar vegna útihátíða verði hætt.

Frumvarp um breytingu á lögum um dýravernd (SÞ og AKG)
Frumvarpið miðar að því að auka heimild Umhverfisstofnunar til að beita sér fyrir endurbótum á dýrahaldi í atvinnuskyni þar sem misbrestur hefur orðið á starfseminni.

Tillaga til þál. um rekstur skólaskips (GAK, G. Hallv. ofl.)
Sjávarúv.ráðh. vinni að því að aftur verði í boði fræðsluferðir fyrir grunnskólanema um fiskveiðar, vinnulag til sjós, fiskifræði og líffræði sjávar, líkt og gert var um borð í rannsóknarskipinu Dröfn RE í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun á liðnum árum og tókst vel.

Frumvarp um tekjuskatt og eignarskatt (Allur þingflokkur)
Frumvarpið kveður á um að launþegar megi draga frá tekjum sínum kostnað við ferðalög til og frá vinnu.

Tillaga til þál. um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar og fiskvinnslu(GAK, JÁ)
Tillagan kveður á um skipan nefndar sem geri tillögu að lagabreytingu um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Þar með kæmust á eðlileg og heiðarleg viðskipti innan sjávarútvegsins þar sem ruanverulegar greiðslur yrðu að fara á milli fyrirtækja, þó svo sömu eigendur væru bæði að veiðum og vinnslu.

Tillaga til þál. um rekstur Ríkisútvarpsins (GAK, MÞH, SÞ)
Meginefni þál.tillögunnar er að tryggja rekstur Ríkisútvarpsins með fjárveitingum á fjárlögum og stjórn RÚV verði ekki pólitísk eins og nú er, heldur akademísk.

Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum (GAK, DrífaH, ÞBack, GÖg)
Léttvín (matarvín) verði lögleg til framleiðslu og einkanota á heimilum. Samkv. frv. er einungis heimilt að framleiða vín undir 15% styrkleika alkóhóls. Með samþykki þessa frv. yrði lögum breytt þannig að fjölmargir þegnar landsins yrðu ekki lögbrjótar við slíka iðju eins og nú er.

Tillaga til þál. um íþróttaáætlun (GÖrl., SJS ofl.)
Menntamálaráðh. verði falið að leggja fram áætlun um markmið og stefnu ríkisins í íþróttamálum til 5 ára.

Tillaga til þál. um íslenskun á ræðum æðstu emb.manna (SÞ)
Það verði almenn regla að ræður sem forseti Íslands og ráðherrar flytja á erlendu tungumáli í embættis nafni verði íslenskaðar ef þess er óskað.

Frumvarp um textun (sjónvarp, kvikmyndir o.fl.) (GAK, SÞ, KolH,GÖgm, BjSig KJúl)
Markmiðið er að tryggja heyrnarskertum og heyrnarlausum aðgang að upplýsingum, afþreyingar- og fræðsluefni til jafns við þá sem hafa fulla heyrn.

Frv. um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (MÞH, GAK, SÞ)
Lagðar eru til breytingar á lögum vegna innheimtu virðisaukaskatts af samgöngumannvirkjum annars vegar og útgáfu blaða og tímarita hins vegar.

Tillaga til þál. um athugun á fjárhagsstöðu forsjárlausra feðra (GÖrl, GAK og KHG)
Félagsmálaráðherra láti kanna fjárhagsstöðu forsjárlausra feðra og hafi frumkvæði að því að grípa til aðgerða í framhaldi af athuguninni.


Auk þess hefur þingflokkurinn lagt fram fjölda fyrirspurna.


Eldri mál:

1) Frv. um niðurfellingu löggæslukostnaðar vegna útihátíða (Flm. Sigurjón Þórðarson) Lagt er til að hætt verði að innheimta kostnað vegna löggæslukostnaðar.

2) Lækkun vsk af hljóðbókum (Flm. Magnús Þór Hafsteinsson ofl.)
Lagt er til að vsk af hljóðbókum lækki til samræmis við vsk af bókum.
Með hljóðbók er átt við lesið efni sem gefið er út á miðli sem nýtist til hlustunar.

3) Frumvarp um viðurkenningu táknmáls sem móðurmáls heyrnarlausra (Flm. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og fleiri) Skýrir sig sjálft.

4)Þál. um raforku (Flm. Sigurjón Þórðarson og Kristján Möller)
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna nefnd sem fái það verkefni að fara yfir mismunandi gjaldskrár orkuveita á landinu og kanna hvort að raforkukostnaður fyrirtækja sé mismikill eftir hvaða orkuveita þjónar fyrirtækjunum. Ef nefndin kemst að því að orkuverð fyrirtækja á landinu er mishátt eftir orkuveitum, er nefndinni falið að leggja mat á hvort að mismunun fyrirtækja eftir staðsetningu á landinu skekki samkeppnisstöðu fyrirtækja.

5) Skattafsláttur vegna barna (Flm. Guðjón og Sigurlín Margrét)
Alþingi ályktar að tekinn verði upp sérstakur skattafsláttur handa börnum. Afslátturinn fylgi hverju barni til 16 ára aldurs. Foreldrar eða forráðamenn barna nýta skattaafsláttinn með frádrætti frá sköttum eða endurgreiðslu við álagningu líkt og um persónuafslátt sé að ræða. Fjármálaráðherra er falið að skoða nánari útfærslu slíks afsláttar og hvort afslátturinn skuli fara stighækkandi eftir fjölda barna. Fjármálaráðherra skal við upphaf haustþings 2004 leggja tillögur sínar fyrir Alþingi í frumvarpsformi. Skal að því stefnt að lög um skattaafslátt taki gildi í upphafi árs 2005.

6) Þál. Landið eitt kjördæmi (Flm. Guðjón og allur þingflokkur)
Skipuð verði nefnd allra þingflokka til að endurskoða kjördæmaskipan. Nefndin skal hafa að markmiði að jafna atkvæðisrétt landsmanna þar sem landið verði eitt kjördæmi.

7) Beiðni til forsætisráðherra um skýrslu um störf Einkavæðingarnefndar (Þingflokkur Fl. ásamt þingflokki VG.)

8)Beiðni til dómsmálaráðherraum skýrslu um framkvæmd alþingiskosninga 10. maí 2003 ( Þingflokkur VG og Frjálsl.)

9) Fsp. til forsætisráðherra um starf Evrópunefndar forsætisráðh. (GAK)

10– 12) Þrjár fyrirspurnir til sjávarútv.rh. (Magnús Þór)


13) Frumvarp um textun sjónvarpsefnis (Flm. Sigurlín Margrét, Kolbrún Halldórsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og fleiri)
Lögboðið verði að texta allt innlent sjónvarpsefni.

( Lágmark 23 sóknardagar MÞH Í vinnslu)


Endurflutt þingmál:

1) Frv. til laga um stéttarfélög og vinnudeilur (GAK)
Meginefni frumvarpsins er að bæta réttarstöðu launþega þegar samningsgerð hefur dregist mánuðum saman. Frumvarpið kveður á um að dragist samningsgerð lengur en 6 mánuði, eigi launþegar rétt á að umsamdar launabætur virki aftur í tímann, allt að þrem mánuðum. Dragist samningar lengur en 12 mánuði, kveður frumvarpið á um að kjarasamningsákvæði séu afturvirk frá því að samningur féll úr gildi.

2) Tillaga til þál. um rekstur Ríkisútvarpsins (Allur þingflokkur)
Meginefni þál.tillögunnar er að tryggja rekstur Ríkisútvarpsins með fjárveitingum á fjárlögum. Afnotagjöld verði þannig lögð af, en grundvöllur RÚV sem hornsteinn menningar í landinu verði treystur ásamt öryggishlutverki þess.

3) Frv. til laga um Lífeyrissjóð sjómanna (GAK)
Meginefni frumvarpsins er að koma í veg fyrir enn frekari skerðingar á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í Lífeyrissjóði sjómanna, sem jafnframt hefðu samskonar áhrif á aðra lífeyrissjóði sem tryggja sjómenn, t.d. Lífeyrissjóði Vestfjarða, Austfjarða, Vestmannaeyja o.fl. Frumvarpið kveður á um að útgerðin greiði tímabundið framlag, 2% til viðbótar, samtals 8%, inn í lífeyrissjóðina og lagi þannig stöðu sjóðanna til framtíðar. Full rök eru fyrir þessu máli, enda hafa lífeyrissjóðirnir virkað sem tryggingarfélag vegna örorkugreiðslna út úr lífeyrissjóðum sjómanna á undanförnum árum.

4) Tillaga til þál. um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar og fiskvinnslu (GAK, Jóhann Ársælss.)
Þingsályktunartillagan kveður á um skipan nefndar sem komi með tillögu að lagabreytingu um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Verði tillagan framkvæmd eftir efni sínu, myndi slíkur aðskilnaður geta komist á 1. janúar 2004. Þar með kæmust á eðlileg og heiðarleg viðskipti innan sjávarútvegsins þar sem raunverulegar greiðslur yrðu að fara á milli fyrirtækja, þó svo sömu eigendur væru að bæði veiðum og vinnslu.

5) Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum
(GAK, Drífa Hjartardóttir, Þuríður Backman, Guðrún Ögmundsdóttir)
Frumvarpið gengur út á að gera löglegt til framleiðslu og einkanota á heimilum manna, léttvín (matarvín), þar sem kunnátta í gerð slíkra vína er þegar fyrir hendi á mörgum heimilum í landinu. Skv. frumvarpinu er einungis heimilt að framleiða vín undir 15% styrkleika alkóhóls. Með samþykkt frumvarpsins yrði lögum breytt á þann veg að fjölmargir þegnar landsins yrðu ekki lögbrjótar við slíka iðju eins og nú er.


6) Frumvarp til laga um breyt. á lögum um tekjuskatt og eignaskatt (GAK) Frumvarpið kveður á um að launþegar megi draga frá tekjum sínum kostnað við ferðalög til og frá vinnu. Miðað er við að kostnaður umfram 120.000 kr. á ári, allt að 400.000 krónum, megi launþeginn draga frá tekjum.

7) Kirkjuskipan ríkisins. (GAK, Þuríður Bachman)
Frumvarpið kveður á um aðskilnað ríkis og kirkju. Lagt er til að ef frumvarpið verði samþykkt, fari í kjölfarið fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort aðskilnaði ríkis og kirkju skuli fylgt fram skv. frumvarpinu. Samþykki þjóðin aðskilnað ríkis og kirkju í slíkri atkv.greiðslu, skipar dóms- og kirkjumálaráðherra 5 manna nefnd til frekari undirbúnings málsins. Gert er ráð fyrir að fullur aðskilnaður gæti náðst á 5 árum þaðan í frá.


8) Tillaga til þingsályktunar um tryggan lífeyri (GAK og Sigurlín)
Lagt er til að bæta skuli þjóðfélagsstöðu lífeyrisþega sem fá minni lífeyri greiddan úr lífeyrissjóði sínum en 40 þús. kr. á mánuði með því að breyta bótareglum almannatrygginga þannig að lífeyrisgreiðslur undir 40 þús. kr. á mánuði skerði ekki grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót eða aðrar bætur lífeyrisþegans.


Þá er unnið að undirbúningi fleiri þingmála í samræmi við stefnu flokksins.
Einnig eru fleiri fyrirspurnir í vinnslu.

Síðast uppfært í ágúst 2005.


_______________________________________________________________________________

 


Þingmál á haustþingi 2002.


Frv. til laga um stéttarfélög og vinnudeilur (GAK)

Meginefni frumvarpsins er að bæta réttarstöðu launþega þegar samningsgerð hefur dregist mánuðum saman. Frumvarpið kveður á um að dragist samningsgerð lengur en 6 mánuði, eigi launþegar rétt á að umsamdar launabætur virki aftur í tímann, allt að þrem mánuðum. Dragist samningar lengur en 12 mánuði, kveður frumvarpið á um að kjarasamningsákvæði séu afturvirk frá því að samningur féll úr gildi.


Tillaga til þál. um rekstur Ríkisútvarpsins (SvH)

Meginefni þál.tillögunnar er að tryggja rekstur Ríkisútvarpsins með fjárveitingum á fjárlögum. Afnotagjöld verði þannig lögð af, en grundvöllur RÚV sem hornsteinn menningar í landinu verði treystur ásamt öryggishlutverki þess.


Frv. til laga um Lífeyrissjóð sjómanna (GAK)

Meginefni frumvarpsins er að koma í veg fyrir enn frekari skerðingar á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í Lífeyrissjóði sjómanna, sem jafnframt hefðu samskonar áhrif á aðra lífeyrissjóði sem tryggja sjómenn, t.d. Lífeyrissjóði Vestfjarða, Austfjarða, Vestmannaeyja o.fl. Frumvarpið kveður á um að útgerðin greiði tímabundið framlag, 2% til viðbótar, samtals 8%, inn í lífeyrissjóðina og lagi þannig stöðu sjóðanna til framtíðar. Full rök eru fyrir þessu máli, enda hafa lífeyrissjóðirnir virkað sem tryggingarfélag vegna örorkugreiðslna út úr lífeyrissjóðum sjómanna á undanförnum árum.


Tillaga til þál. um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri útgerðar og fiskvinnslu (GAK, Svanfríður Jónasd. Árni Steinar Jóhannsson, Jóhann Ársælss.)

Þingsályktunartillagan kveður á um skipan nefndar sem komi með tillögu að lagabreytingu um fjárhagslegan aðskilnað veiða og vinnslu. Verði tillagan framkvæmd eftir efni sínu, myndi slíkur aðskilnaður geta komist á 1. janúar 2004. Þar með kæmust á eðlileg og heiðarleg viðskipti innan sjávarútvegsins þar sem raunverulegar greiðslur yrðu að fara á milli fyrirtækja, þó svo sömu eigendur væru að bæði veiðum og vinnslu.

 

Frumvarp til laga um hvalveiðar. (GAK, Magnús Stefánss., Jóhann Ársælss.,Guðjón Guðmundsson)

Frumvarpið kveður á um að hefja skuli hvalveiðar frá og með 1. maí árið 2003 og jafnframt að ráðherra sjávarútvegsmála sé einungis heimilt fyrstu tvö árin að leyfa veiðar á færri dýrum en tillögur Hafrannsóknarstofnunar eru um. Að þeim aðlögunartíma loknum skal stefnt að því að veiða allan þann fjölda dýra sem lagt er til af Hafrannsóknarstofnun.


Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum, (GAK, Drífa Hjartardóttir, Þuríður Backman, Guðrún Ögmundsdóttir)

Frumvarpið gengur út á að gera löglegt til framleiðslu og einkanota á heimilum manna, léttvín (matarvín), þar sem kunnátta í gerð slíkra vína er þegar fyrir hendi á mörgum heimilum í landinu. Skv. frumvarpinu er einungis heimilt að framleiða vín undir 15% styrkleika alkóhóls. Með samþykkt frumvarpsins yrði lögum breytt á þann veg að fjölmargir þegnar landsins yrðu ekki lögbrjótar við slíka iðju eins og nú er.


Frumvarp til laga um breyt. á lögum um tekjuskatt og eignaskatt (GAK og SvH)

Frumvarpið kveður á um að launþegar megi draga frá tekjum sínum kostnað við ferðalög til og frá vinnu. Miðað er við að kostnaður umfram 120.000 kr. á ári, allt að 400.000 krónum, megi launþeginn draga frá tekjum.


Kirkjuskipan ríkisins. (GAK, Árni Steinar og SvH)

Frumvarpið kveður á um aðskilnað ríkis og kirkju. Lagt er til að ef frumvarpið verði samþykkt, fari í kjölfarið fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort aðskilnaði ríkis og kirkju skuli fylgt fram skv. frumvarpinu. Samþykki þjóðin aðskilnað ríkis og kirkju í slíkri atkv.greiðslu, skipar dóms- og kirkjumálaráðherra 5 manna nefnd til frekari undirbúnings málsins. Gert er ráð fyrir að fullur aðskilnaður gæti náðst á 5 árum þaðan í frá.


Umsvif deCODE í íslensku fjármálakerfi (Sv.H.)

Þingsályktunartillaga um að kosin verði rannsóknarnefnd níu alþingismanna til að rannsaka umsvif bandaríska fyrirtækisins deCODE Genetics Inc. og að stoðarmanna þess í íslensku fjármálakerfi. Þeir viðskiptahættir sem viðhafðir voru við sölu hlutabréfa í deCODE á Íslandi virðast hafa verið með þeim hætti að ítarleg rannsókn sé nauðsynleg, ekki síst hvaða ábyrgð íslensk stjórnvöld kunna að bera í því sambandi.


Tillaga til þingsályktunar um tryggan lífeyri (GAK)

Lagt er til að bæta skuli þjóðfélagsstöðu lífeyrisþega sem fá minni lífeyri greiddan úr lífeyrissjóði sínum en 40 þús. kr. á mánuði með því að breyta bótareglum almannatrygginga þannig að lífeyrisgreiðslur undir 40 þús. kr. á mánuði skerði ekki grunnlífeyri, tekjutryggingu, heimilisuppbót eða aðrar bætur lífeyrisþegans.


Þingsályktun textun sjónvarpsefnis (Pétur Bjarnason og SvH)

Þingsályktun um að flýtt verði textun sjónvarpsefnis til hagsbóta fyrir heyrnarlausa og heyrnardaufa og aðra sem háðir eru textun. Komið hefur í ljós að Íslendingar eru langt á eftir nágrannaþjóðum sínum í textun sjónvarpsefnis á eigin tungu.


Þá er unnið að undirbúningi þingmála í samræmi við stefnu flokksins.

Einnig eru nokkrar fyrirspurnir í vinnslu.

20. nóv. 2002.

ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara