Gullkistan_L
« Maí 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    
Greinar
Sunnudagur, 16 Október 2011 01:30

Grátkór bankanna

Skrifað af Guðjón Arnar Kristjánsson
Nú þegar til stendur í frumvarpi sjávarútvegsráðherra um kvótakerfið að takmarka og síðan afnema að 23 árum liðnum veðsetningu á óveiddum fiski í sjó til bankanna,upphefst  sameiginlegur grátkór bankanna um að veðsetningu megi ekki breyta og að á lifandi fiski í sjó, auðlind þjóðarinnar,verði áfram alla tíð veðtrygging fyrir lánum til útgerðarfyrirtækja. Allt lánakerfi bankanna verður í uppnámi og einskisvirði að þeirra sögn án þessa veðs í óveiddum fiski sem þjóðin á. Í lögum er skrifað "Nytjastofnar á Íslandsmiðum er sameign íslensku þjóðarinnar". Ástæða er til að spyrja?? Hafa starfsmenn og eigendur bankanna ekkart  lært af reynslu undanfarinna ára, óhófslána út á sýndarverðmæti. Eða telja bankarnir enþá að eitt kíló af þorski sé allt að 4.000 króna virði óveiddur og syndandi í sjónum við Ísland. Eru lánastofnanir landsins orðnar ófærar um að leggja mat á rekstur og afkomu þeirra sem eru í atvinnurekstri. Eða meta dugnað þeirra og afkomumöguleka sem starfa í sjávarútvegi.

Skrifstofa Frjálslynda flokksins er flutt í Grasrótarmiðstöðina að Brautarholti 4, Reykjavík.  Fyrsti miðstjórnarfundurinn í nýja húsnæðinu verður haldinn laugardaginn 15. októbert nk.

Grasrtarmist

Þorskur: Í skýrslu Hafró nú í vor um ástand nytjastofna sjávar 2010-2011 og aflahorfur, næsta fiskveiðiárs 2011-2012 kemur enn á ný fram að vöxtur þorskstofnsins er mun meiri og hraðari en fyrri áætlanir Hafrannsóknarstofnunar gerðu ráð fyrir. Það er að sjálfsögðu afar ánægjulegar niðurstöður. Það er hinsvegar óásættanlegt að enn á ný eigi að reyna samkvæmt tillögum Hafrómanna að geyma þá stækkun stofnsins svo til alla áfram í sjónum.

Gujn_Arnar

Fimmtudagur, 09 Júní 2011 22:40

Treystum þjóðinni

Skrifað af Sigurjón Þórðarson
Frá hruni hefur almenningi verið ljós þörfin fyrir gagngera endurskoðun á stjórnarháttum landsins. Í síðustu Alþingiskosningum gáfu kjósendur kjörnum fulltrúum sínum sem fara með löggjafarvaldið skýrt umboð til breytinga. Þeir frambjóðendur stjórnmálastéttarinnar sem fengu brautargengi voru þeir sem gáfu skýr fyrirheit um breytingar.  Breytingarnar hafa heldur betur staðið á sér vegna þess einfaldlega að fulltrúarnir gengu á bak orða sinna að afloknum kosningum. Þeir boðuðu miklar breytingar, s.s. Steingrímur J. Sigfússon, en stóðu með föllnu fjármála- og sérhagsmunakerfi á kostnað almannaheilla og gagnsæis.
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara