Gullkistan_L
« Júní 2013 »
Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
Stjórn Frjálslynda flokksins styður heilshugar þá sjómenn sem hyggjast
berjast fyrir rétti sínum og alls almennings og róa til fiskjar með
handfæri, án kvóta.  Sjómennirnir eru í fullum rétti enda ótvírætt
varðir af jafnræðisreglu stjórnarskrár íslenska lýðveldisins og eru
réttindin tryggð í alþjóðasamningum sem íslenska lýðveldið hefur
undirgengist. Undir það hafa tekið æðstu valdhafar framkvæmdarvaldsins í
málefnum dómsmála og sjávarútvegsmála, sbr. þskj. 6 á 136.
löggjafarsamkomu lýðveldisins. Stjórnarflokkarnir, Vinstri grænir og
Samfylkingin, gáfu sjómönnunum í mannréttindabaráttunni, sem margir eru
ungir að árum, skýr fyrirheit fyrir síðustu alþingiskosningar um að
jafnræði íslenskra þegna yrði virt við nýtingu sameiginlegrar
fiskveiðiauðlindar þjóðarinnar. Engin rök eru fyrir því að nokkrir
almannahagsmunir geti legið því til grundvallar að takmarka
handfæraveiðar, s.s. vegna meintrar ofveiði. Algerlega útilokað er að
ofveiða fiskistofna með handfærum.
Laugardagur, 15 Október 2011 13:47

Mikil þörf á kerfisbreytingum

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Miðstjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við alheimsmótmælin í dag þann 15 október, gegn spilltu samkrulli fjármála og stjórnmála. Það hefur sýnt sig eftir hrun íslensku bankanna og efnahagsvanda hins vestræna heims, að mikilla breytinga er þörf á núverandi fjármálakerfi.

Stjórnmálastéttin heyrir ekki lengur í almenningi og hefur gjáin á milli ráðandi afla og almennings breikkað. Í stað þess að stjórnmálin taki mið af hag almennings þá ræðst ákvarðanataka í meira mæli af þröngum sérhagsmuna- og peningaöflum.

Frjálslyndi flokkurinn álítur þörfina fyrir kerfisbreytingar vera brýna og mótmælir leyndarhyggju stjórnvalda og að aftur sé verið að blása upp bankakerfið á fölskum forsendum.

Nefndasvið Alþingis

Austurstræti 8–10

150 Reykjavík

 

Efni: Umsögn Frjálslynda flokksins um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða – mál nr. 827.

Ef frumvarpið verður samþykkt verða skert stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi, sbr. 75 gr. stjórnar­skrárinnar, og réttur landsmanna til veiða takmarkaður með aflamarkskerfi. Í frumvarpinu er vísað til almannahagsmuna og fiskverndar en ef litið er til hins hræðilega „árangurs“ aflamarkskerfisins í að ná upphaflegum markmiðum sínum er algjör firra að festa kerfið í sessi með tilvísun í almannahagsmuni.

Stjórn Frjálslynda flokksins þakkar stjórnlagaráði fyrir vel unnið frumvarp að nýrri stjórnarskrá, sem rétt er að leggja sem allra fyrst í dóm þjóðarinnar, þar sem að breytingarnar á stjórnarskránni munu án nokkurs vafa ryðja braut nauðsynlegra breytinga á stjórnarfari Íslands.

Stjórn Frjálslynda flokksins fagnar sérstaklega auðlindaákvæði frumvarpsins sem kveður á um að jafnræði eigi að ríkja við nýtingu fiskistofna sem og annarra náttúruauðlinda þjóðarinnar.

Stjórn Frjálslynda flokksins

Garðabæ, 7. ágúst, 2011

badge_60x60_jpgStjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með þær fréttir að ríkisstjórn Íslands hyggist festa í sessi illræmt kvótakerfi til áratuga, sem mismunar landsmönnum og særir réttlætisvitund almennings. Ljóst má þykja að þeir ráðamenn sem samþykkja slíka ósvinnu geta verið sóttir til saka fyrir að fara gegn stjórnarskránni.

Stjórn Frjálslynda flokksins hvetur til þess að sjómenn íhugi að láta reyna á ólögin um stjórn fiskveiða sem brjóta í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og halda til veiða.

29. apríl 2011

Sigurjón Þórðarson, formaður Ásta Hafberg, varaformaður Grétar Mar Jónsson ritari

Sunnudagur, 10 Apríl 2011 18:43

Þakkir til forseta Íslands

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Stjórn Frjálslynda flokksins þakkar Ólafi Ragnari Grímssyni fyrir frækna framgöngu hans í Icesave málinu. Frá upphafi hefur málsmeðferð stjórnvalda í Icesavemálinu verið með endemum s.s. að ætla að þröngva  Icesavesamningnum ólesnum í gegnum Alþingi og geta ekki skýrt og varið af myndugleik málstað Íslendinga.

pg-2-iceland-pres-e_289485sSú ákvörðun forsetans að skjóta Icesavemálinu til þjóðarinnar verður vonandi til þess að núverandi ríkisstjórn og sömuleiðis ríkisstjórnir framtíðarinnar taki í auknum mæli ákvarðanir í samræmi við vilja þjóðarinnar.

 

Sjávarútvegsnefnd Frjálslynda flokksins leggur til að veiðiheimildir verði strax auknar í botnfisktegundum og leigðar út á vegum ríkisins.

Aukningin myndi skapa fjölda starfa og auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar.

thorskur

 

F.h. Sjávarútvegsnefndar Frjálslynda flokksins, þann 26. febrúar 2011

Sigurjón Þórðarson, formaður

Á miðstjórnarfundi Frjálslynda flokksins þann 5. febrúar 2011 var einróma samþykkt að skora á forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson að leggja nýjasta Icesave-samninginn í dóm þjóðarinnar. 

Alþingi Íslendinga er rúið trausti og missti umboð þjóðarinnar í Icesave deilunni í  þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 6. mars 2010. Vísasta leðin til sáttar í samfélaginu er að leyfa þjóðinni að segja álit sitt á því hvort  íslenskir skattgreiðendur eigi að greiða ólögvarðar kröfur Breta og Hollendinga. Það er skylda okkar að kanna hvort þjóðin sé sátt við að greiða skuldir einkabanka.pg-2-iceland-pres-e_289485s

Laugardagur, 15 Janúar 2011 16:14

Ályktun Miðstjórnar Frjálslynda flokksins

Skrifað af Sigurjón Þórðarson

Miðstjórn Frjálslynda flokksins sendir fundarmönnum á fundi Vg og Samfylkingar í Reykjavík um fiskveiðiauðlindina í almannaeign baráttukveðju.

Miðstjórn Frjálslynda Flokksins hvetur fundarmenn til dáða í baráttunni gegn óréttlátu kvótakerfi og láti ekki sérhagsmunaöfl festa núverandi kerfi í sessi. Meingallað kvótakerfi er ekki á vetur setjandi. Hafa þarf hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, efla lýðræði og virða jafnræði í verki.

Samþykkt á fundi þann 15.janúar 2011,

Íslendingar hafa sýnt aðgerðarleysi ríkisstjórnar Samfylkingar og VG gríðarlegt langlundargeð. Það orsakast af því hvað hinir hlutar fjórflokksins hafa lélegt orðspor.

Tveimur árum eftir hrun og rúmum mánuði eftir ein stærstu mótmæli í sögu lýðveldisins, hefur ríkisstjórnin storkað almenningi með marklausu tali þar sem slegið er úr og í hvernig marglofuð skjaldborg verði reist um íslensk heimili. Engar aðgerðir liggja fyrir og ekki einu sinni útreikningar á mögulegum lausnum nú tveimur árum eftir hrun!

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara