Sigurjón Þórðarson

Vefslóð: Netfang: Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið

Miðvikudagur, 23 Janúar 2013 22:26

Þorrablót og Landsþing Frjálslynda flokksins

Þorrablót Frjálslynda flokksins verður haldið laugardagskvöldið 26. janúar nk. og daginn eftir eða sunnudaginn 27. janúar verður landsþing Frjálslynda flokksins sett kl. 13 að Brautarholti 4 í Reykjavík.

 

Dagskrá landsþings:

Kosning fundarstjóra, fundarritara og annarra starfsmanna.
Skýrsla framkvæmdastjórnar.
Grein gerð fyrir reikningum flokksins.
Skipan í málefnanefndir.
Kosningar í embætti.
Umræður um nefndarálit.
Stjórnmálaályktun.
Alþingiskosningar 2013.

Önnur mál.

Framhaldsstofnfundur nýrra stjórnmálasamtaka verður haldinn á Grand
hóteli sunnudaginn 18. mars 2012 kl. 14 – 17.

Hér að neðan eru drög að kjarnastefnu.

Gefinn er kostur á að senda inn skriflegar breytingartillögur við
drögin og skulu þær hafa borist bráðabirgðaframkvæmdaráði fyrir
miðnætti að kvöldi hins 11. mars 2012.  Breytingartillögur er hægt að
senda á 
 Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið
 

Drög að kjarnastefnu nýrra stjórnmálasamtaka
			  
Stjórn Frjálslynda flokksins fagnar framboði Ólafs Ragnars Grímssonar til embættis
forseta Íslands og hvetur fólk til að styðja framboð hans. Ólafur Ragnar hefur
staðið með þjóðinni og verið öflugur talsmaður Íslands á alþjóðavettvangi þegar mest
á reynir og hallað hefur á málstað Ísland og hefur rödd forsetans á þeim stundum
verið ómetanleg.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur fyrstur forseta virkjað 26.gr
stjórnarskrárinnar sem kveður á um málskotsrétt til þjóðarinnar og með því sýnt
einlægan lýðræðisvilja sinn í verki.
Stjórn Frjálslynda flokksins telur að á þeim erfiðu tímum sem framundan eru á
Íslandi og skýrskotar stjórn Frjálslynda flokksins t.d. til undirbúnings nýrrar
stjórnarskrár og auðlindamála, vanda heimilanna og samskipta Íslands á erlendum
vettvangi, þá sé reynsla og þekking Ólafs Ragnars Grímssonar á forsetastóli
íslenskum almenningi nauðsynleg.
Stjórn Frjálslynda flokksins fagnar framboði Ólafs Ragnars Grímssonar og hvetur fólk til styðja hann til áframhaldandi setu á Bessastöðum. Ólafur Ragnar Grímsson hefur sýnt dug, þor og kjark til að standa með þjóðinni og vera öflugur talsmaður á alþjóðavettvangi. Þegar mest hefur á reynt og hallað hefur á íslensku þjóðina, þá hefur rödd forsetans verið ómetanleg. Forsetinn hefur gefið þjóðinni kost á að taka sjálfri ákvarðanir um veigamikil mál og með áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í forsetastóli eru allar líkur á að svo verði áfram.
Þriðjudagur, 07 Febrúar 2012 10:33

Ný stjórnmálasamtök verða til

Fulltrúar Frjálslynda flokksins hafa að undanförnu sótt fundi þar sem rætt hefur verið um myndun nýs samstarfsvettvangs um framboð til næstu Alþingiskosninga til að hrinda brýnum hagsmunamálum almennings í framkvæmd.

Þeir sem hafa sótt fundina á vegum Frjálslynda flokksins eru m.a. Sigurjón Þórðarson, Ásta Hafberg, Grétar Mar Jónsson, Guðjón Arnar Kristjánsson og Helga Þórðardóttir. Viðræðurnar hafa leitt til þess að klukkan 12, þann 12. febrúar 2012 er fyrirhugað að hefja stofnferli nýrra stjórnmálasamtaka. Fundurinn, sem er öllum opinn, fer fram í Grasrótarmiðstöðinni, Brautarholti 4, 105 Reykjavík. Fyrir fundinum liggja drög að lögum hins nýja félags og drög að kjarnastefnu.

Fundargögnin eru aðgengileg á netinu:

Facebook

Drög að lögum lögum og drög að kjarnastefnu.

Samráðsfundur Frjálslynda flokksins

 

Dagskrá:

 

 1. Setning , Sigurjón Þórðarson, formaður.

2. Styrmir Gunnarsson, þjóðfélagsrýnir og fyrrverandi ritstjóri.

3. Lýður Árnason, læknir og stjórnlagaráðsfulltrúi. Fyrirspurnir og umræður.

14:30 Kynning vinnuhópa: a) Guðjón Arnar Kristjánsson, velferðar og tryggingamál. b) Ásta Hafberg, lýðræði og stjórnsýsla. c) Grétar Mar Jónsson, auðlindir og sjávarútvegur. d) Sigurjón Þórðarson, landbúnaðar- og umhverfismál, samráð við aðra flokka og hreyfingar.

17:30 Samantekt vinnuhópa kynnt og umræður til 18:30.

20:30 Sameiginleg jólaglögg í Grasrótarmiðstöðinnni.

Fundur Frjálslynda flokksins hefst klukkan 13, laugardaginn 3. desember 2011, í Grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4, Rvík.

Miðstjórn Frjálslynda flokksins ákvað á síðasta fundi sínum að boða til landsráðsfundar og verður fundurinn haldinn að Brautarholti 4 í Reykjavík, laugardaginn 3. desember 2011.

Á fundinum verður m.a. rætt um samvinnu og samstarf við aðra hóp og hreyfingar sem deila með flokknum húsnæði í grasrótarmiðstöðinni að Brautarholti 4 í Reykjavík.  Dagskrá fundarins verður send út til flokksmann Frjálslynda flokksins á næstu dögum en hægt er að gera tillögu að dagskrárefni með því að senda formanni eða varaformanni tillögur.

Sigurjón Þórðarson formaður

Þetta netfang er varið gegn spami, þú þarft að hafa JavaScript virkt til að sjá netfangið   

 

Kaffispjall verður í Grasrótarmiðstöðinnni Brautarholti 4, Reykjavík laugardaginn 5. nóvember kl. 13. Gunnar Skúli Ármannsson mun m.a. greina frá raunveruleika íslensks efnahagslífs.  
Laugardaginn 22. október nk.kl 13:00, munu formaður Frjálslynda flokksins Sigurjón Þórðarson og ritari Frjálslynda flokksins Grétar Mar Jónsson
ásamt fulltúum Þjóðarflokksins fjalla um sjávarútvegsmál á opnum fundi.

Fundurinn verður haldinn í nýju húsnæði Frjálslynda flokksins, að Brautarholti 4, Reykjavík sem flokkurinn deilir með ýmsum öðrum grasrótarsamtökum. 

Allir velkomnir

Sigurjón Þórðarson 

formaður

Stjórn Frjálslynda flokksins styður heilshugar þá sjómenn sem hyggjast
berjast fyrir rétti sínum og alls almennings og róa til fiskjar með
handfæri, án kvóta.  Sjómennirnir eru í fullum rétti enda ótvírætt
varðir af jafnræðisreglu stjórnarskrár íslenska lýðveldisins og eru
réttindin tryggð í alþjóðasamningum sem íslenska lýðveldið hefur
undirgengist. Undir það hafa tekið æðstu valdhafar framkvæmdarvaldsins í
málefnum dómsmála og sjávarútvegsmála, sbr. þskj. 6 á 136.
löggjafarsamkomu lýðveldisins. Stjórnarflokkarnir, Vinstri grænir og
Samfylkingin, gáfu sjómönnunum í mannréttindabaráttunni, sem margir eru
ungir að árum, skýr fyrirheit fyrir síðustu alþingiskosningar um að
jafnræði íslenskra þegna yrði virt við nýtingu sameiginlegrar
fiskveiðiauðlindar þjóðarinnar. Engin rök eru fyrir því að nokkrir
almannahagsmunir geti legið því til grundvallar að takmarka
handfæraveiðar, s.s. vegna meintrar ofveiði. Algerlega útilokað er að
ofveiða fiskistofna með handfærum.
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
ankara oto kiralama rent a car ankara araba kiralama ankara