Það er ekki samboðið heiðarlegu fólki að gera öðrum upp meintar illar gjörðir gegn landi og þjóð. Ég finn mig þó knúinn til þess. Afsökun mín getur verið að aðstæður á Íslandi séu mjög sérstakar og hitt að mikið liggur við. Auk þess er meira en hugsanlegt að hinir geri sér enga grein fyrir afglöpum sínum því þeir telja sig vera gera gott gagn. Að lokum er mögulegt að fleiri en ein þjóð búi í landinu.Við lestur á skýrslu og viljayfirlýsingu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá apríl 2010 er það augljóst að sjóðurinn vill ekki hjálpa skuldsettum heimilum landsmanna. Eina færa leiðin fyrir skulduga að mati sjóðsins er að greiða skuldir sínar eða verða gjaldþrota að öðrum kosti. Núverandi ríkisstjórn sættir sig við þessa niðurstöðu. Þjóðin ekki.